Ný lögreglustöð verður reist 29. desember 2007 19:53 Björn Bjarnason vill reisa nýja lögreglustöð í stað þeirrar sem stendur á Hverfisgötu.
Til stendur að reisa nýja lögreglustöð í stað þeirrar sem stendur á Hverfisgötu. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra gerir þetta að umtalsefni á vefsíðu sinni í dag. „Á mínu borði er næsta stórverkefni að finna stað fyrir nýja lögreglustöð á höfuðborgarsvæðinu og vinna að því, að hafist verði handa við að reisa hana," segir Björn. „Þetta mál hefur verið til athugunar, en engin lóð er í takinu," svaraði Björn þegar Vísir spurði hann út í málið. Hann segir að engar tímasetningar hafi verið ákveðnar, hvorki um það hvenær bygging ætti að hefjast né um það hvenær vonast væri til þess að nýja lögreglustöðin yrði opnuð. En húsakynni lögreglunnar eru ekki það sem almennum lögreglumönnum er efst í huga þessa dagana. Talsverðs kurrs hefur gætt á meðal þeirra undanfarna daga vegna óánægju með mikið álag og undirmönnun hjá lögreglunni. Var fundað vegna þess í gær. Stefán Eiríksson lögreglustjóri sagði í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 að menn ýktu ástandið. Von væri á fleiri menntuðum lögreglumönnum til starfa og að starfsmannavelta væri ekki mikil innan embættisins. Dómsmálaráðherra segir að vel hafi tekist til við sameiningu löggæslu á höfuðborgarsvæðinu undir öruggri stjórn Stefáns Eiríkssonar og hans manna. „Fyrsta heila ár sameiningar er að baki og margt gott hefur áunnist. Enn má gera betur eins og fram kom á fundi lögreglumannanna," segir Björn.
Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Innlent Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Innlent Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Ari þiggur stöðu stjórnarformanns Innlent Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda Innlent Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Erlent Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Innlent Barn réðst með belti á önnur börn Innlent Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Erlent Fleiri fréttir Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda „Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Sturlaugur nýr bæjarstjóri Akranessbæjar Evrópumet í verðhækkunum og vígbúnaðarkapphlaup Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Sofandi á akbraut Heitavatnslaust í miðborg í kvöld Enn bólar ekkert á fleiri ákærum vegna netverslunar Framkvæmdir við Hvammsvirkjun í vari út árið Almenningur ekki talinn eiga rétt á upplýsingum um ETS-sérlausn Barn réðst með belti á önnur börn Hæstiréttur hafnar beiðni Elju um að taka fyrir meiðyrðamál Virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar fær grænt ljós Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Ferðum Íslendinga til útlanda fækkar Hvetur almenning til að vera á varðbergi Náttúruminjasafn og Náttúrufræðistofnun renna saman Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Ríkisstjórnin beri ábyrgð á hindrunum Þórkötlu Óviðunandi að ákveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úrræðaleysi Sjá meira