Körfubolti

Nowitzki söng lag eftir David Hasselhoff | Myndband

Nowitzki mundar gítarinn.
Nowitzki mundar gítarinn.
Ný heimildarmynd um þýsku körfuboltahetjuna Dirk Nowitzki var frumsýnd í Þýskalandi á dögunum.

Margir af núverandi og fyrrverandi félögum Nowitzki hjá Dallas Mavericks mættu á frumsýningunni og skemmtu sér konunglega.

Nowitzki hefur verið að auglýsa myndina í heimalandinu síðustu daga og mætti meðal annars í spjallþátt Stefan Raab.

Þáttarstjórnandinn kom Nowitzki á óvart er hann sótti tvo gítara og tóku þeir lagið saman.

Eins og alvöru Þjóðverjum sæmir þá tóku þeir að sjálfsögðu lag með David Hasselhoff. Looking for Freedom varð fyrir valinu en það lag fór á toppinn í Þýskalandi á sínum tíma.

Horfa má á þessa skemmtilegu uppákomu hér að neðan.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×