Innlent

Nota Tinder til að vekja athygli á hvarfi Birnu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Leitað var að Birnu við Hafnarfjarðarhöfn í alla nótt en margir sem nota samfélagsmiðilinn Tinder hafa skipt út myndinni af sér fyrir tilkynningu um hvarf Birnu.
Leitað var að Birnu við Hafnarfjarðarhöfn í alla nótt en margir sem nota samfélagsmiðilinn Tinder hafa skipt út myndinni af sér fyrir tilkynningu um hvarf Birnu. vísir/vilhelm/garðar
Ungt fólk hefur undanfarið skipt út myndum af sér á samfélagsmiðlinum Tinder til að vekja athygli á hvarfi Birnu Brjánsdóttur sem saknað hefur verið síðan á aðfaranótt laugardags.

Í gærkvöldi kom póstur inn í hópinn Beauty Tips á Facebook þar sem stelpur á Tinder voru sérstaklega hvattar til að skipta um mynd af sér og setja í staðinn mynd af tilkynningu um að Birnu sé saknað. Má ætla að markmiðið sé ekki hvað síst að ná til útlendinga og ef til vill helst erlendra ferðamanna sem kunna að búa yfir einhverjum upplýsingum um ferðir Birnu aðfaranótt laugardags.

Tinder er stefnumótaforrit sem nýtur mikilla vinsælda hér á landi. Eitt af því sem er í forgangi hjá lögreglu við rannsókn málsins er að reyna að komast inn á Tinder-aðgang Birnu til að sjá hvort hún hafi verið í samskiptum við einhvern þar nóttina sem hún hvarf.

Árangurslaus leit hingað til

Skipulögð leit hófst að Birnu fyrir hádegi í gær og stóð linnulaust yfir fram undir morgun. Byrjað var að leita í miðbæ Reykjavíkur í 300 metra radíus út frá þeim stað þar sem Birna hverfur sjónum í eftirlitsmyndavélum við Laugaveg 31 klukkan 05:25 aðfaranótt laugardags. Leitin var árangurslaus en eftir hádegi hófst leit við Flatahraun í Hafnarfirði þar sem sími Birnu sendi seinast frá sér merki áður en slökkt var honum rétt fyrir klukkan sex um morguninn.

Sú leit færðist inn í Heiðmörk í gærkvöldi þar sem leitað var á svokallaðri flóttamannaleið milli Vífilsstaða og Kaldárselsvegar en á tólfta tímanum fundust skór áþekkir þeim sem Birna klæddist nóttina sem hún hvarf við Hafnarfjarðarhöfn. Þungamiðja leitarinnar færðist því þangað í nótt en bar ekki árangur. Áfram verður leitað í dag og er leit nýhafin við Hafnarfjarðarhöfn og Flatahraun.

Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og sá sem stýrir rannsókninni á hvarfi Birnu, segir að skórnir sem fundust í gær séu í sömu skóstærð og Birna notar. Þá eru þeir jafnframt af sömu tegund og sama lit en enn á eftir að staðfesta að um hennar skó sé að ræða.

Rannsóknin beinist fyrst og fremst að skónum

Að sögn Gríms beinist rannsókn lögreglu nú fyrst og fremst að skónum enda eru fáar aðrar vísbendingar til staðar. Er málið skoðað út frá öllum hliðum og meðal annars reynt að finna út úr því hvort skónum hafi verið mögulega komið fyrir við höfnina.

Þá er lögreglan jafnframt með það í forgangi að reyna að komast inn á Tinder-aðgang Birnu en eini samfélagsmiðillinn sem lögreglan hefur komist inn á er Facebook.

Ökumaður rauðrar Kia Rio-bifreiðar, sem lögreglan lýsti eftir í gærmorgun, hefur heldur ekki gefið sig fram og segir Grímur lögregluna enn reyna að hafa uppi á þeim aðila. Verið sé að vinna úr gögnum frá bílaleigum þessa stundina en bíllinn ók niður Laugaveg og í raun framhjá Birnu um það leyti sem hún hverfur úr myndavélum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×