Platan Slaves með harðkjarnasveitinni Muck kemur út á þriðjudag. Hún hefur verið fáanleg í sérstakri forsölu á síðunni Gogoyoko að undanförnu. Á plötunni kennir ýmissa grasa. Til að mynda leikur borvél aðalhlutverkið í einu lagi plötunnar þar sem hún er notuð til að bora í heimasmíðaðan gítar yfir stöðugan takt.
Muck eru nú í viðræðum við erlend útgáfufyrirtæki og stefna á að fylgja plötunni eftir með tónleikum úti. Þá hefur sveitinni boðist að vinna með kynningarfyrirtækinu Prescription PR að kynningarmálum í Bretlandi. Fyrirtækið hefur unnið með Universal, Warner Music og Sony.