Innlent

Norðurljósaferðamenn festust í skafli

Úr safni
Björgunarsveitarmenn voru kallaðir út í nótt til þess að aðstoða erlenda ferðamenn, sem sátu í föstum bíl sínum við Hafravatn í austanverðri Reykjavík.

Þeir höfðu brugðið sér í svonefnda norðurljósaferð, en rötuðu upp í snjóskafl. Ekkert amaði að þeim og óku þeir aftur til borgarinnar eftir að búið var að losa bílinn úr festunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×