Lífið

Níutíu manns hættu að fylgja Skálmöld vegna stuðningsyfirlýsingar við Gay Pride

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Hér má sjá merki sveitarinnar í litum Gay Pride hátíðarinnar og þar við hliðina á færsluna sem fylgdi með.
Hér má sjá merki sveitarinnar í litum Gay Pride hátíðarinnar og þar við hliðina á færsluna sem fylgdi með.
Níutíu manns hafa hætt að fylgja Skálmöld á Facebook, eftir helgina og rekja hljómsveitarmeðlimir það til stuðningsyfirlýsingar við samkynhneigða sem birtist á síðunni á föstudag.

Þá var merki sveitarinnar birt í litum Gay Pride hátíðarinnar og með fylgdi yfirlýsing sveitarinnar. Í henni stóð: „Munum að enginn getur haft rangt fyrir sér þegar það kemur að kynhneigð, kyni, trúarskoðunum, litarhafti, þjóðerni, tónlistarsmekk eða í raun hverju sem er, svo lengi sem allir eru þeir sjálfir.

Yfirlýsingin fékk frábær viðbrögð, tæplega þúsund manns smelltu á „like-takkann“ og 126 manns deildu henni. En níutíu manns hættu að fylgja sveitinni.

Alls eru rúmlega 28 þúsund manns sem fylgja sveitinni á Facebook og eru þeir sem hættu að fylgja sveitinni því eingöngu um 0,3 prósent aðdáenda.

Hér má sjá meðlimi Skálmaldar eftir vel heppnaða tónleika í Hörpu í fyrra.
Bassaleikarinn Bibbi, sem heitir Snæbjörn Ragnarsson, segir viðbrögðin sýna að mikilvægt er að halda Gay Pride og lýsa yfir stuðningi við hinsegin fólk. „Við sjáum ekki eftir fólkinu sem hætti að fylgja okkur, maður er mest leiður yfir því að það sé staðreynd að sumir hugsa enn svona," segir hann og bætir við:

„Auðvitað fundum við fyrir miklu, miklu meiri stuðningi en hinu, sem betur fer. En engu að síður eru nógu margar neikvæðar raddir - hatursraddir má segja - þarna úti. Maður verður bara hissa á þessu. Og það sýnir hversu mikilvægt það er að halda málstað eins og Gay Pride á lofti."

Meðlimir Skálmaldar standa nú í ströngu þessa dagana. Þeir æfa sig fyrir Reykjavíkurmaraþonið sem fer fram 23. ágúst. Sveitin hefur komið fram í auglýsingum fyrir maraþonið, þar sem sýnt er frá stífum æfingum.

Hér að neðan má sjá færslur á Facebook-síðu sveitarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×