Körfubolti

Níundi sigur Cleveland í röð | Myndbönd

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kevin Love og félagar hafa unnið níu leiki í röð.
Kevin Love og félagar hafa unnið níu leiki í röð. vísir/getty
Níu leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt.

Cleveland Cavaliers er á góðu skriði og vann sinn níunda sigur í röð í nótt þegar liðið lagði Sacramento Kings á heimavelli, 101-90.

Kevin Love fór fyrir Cleveland-mönnum með 23 stig og 10 fráköst og leikstjórnandinn Kyrie Irving skilaði 21 stigi og sex stoðsendingum. LeBron James, sem sneri aftur í lið Cleveland, eftir meiðsli, skoraði 19 stig og gaf sjö stoðsendingar.

DeMarcus Cousins var stigahæstur í liði Sacramento með 21 stig en hann tók auk þess 13 fráköst.

Besta liðið deildarinnar, Golden State Warriors, tapaði sínum öðrum leik í röð þegar liðið lá fyrir Utah Jazz í Salt Lake City, 110-100.

Gordon Haywood lét veikindi ekki á sig fá og var besti leikmaður Utah. Haywood skoraði 26 stig, tók 15 fráköst, gaf sex stoðsendingar og stal boltanum þrisvar sinnum. Trevor Booker skilaði 17 stig og sjö fráköstum af bekknum en varamenn Utah skoruðu alls 51 stig í leiknum.

Stephen Curry skoraði 32 stig fyrir Golden State en þetta var níundi leikurinn í vetur þar sem hann skorar 30 stig eða meira.

Sigurganga Atlanta Hawks heldur áfram en í nótt bar liðið sigurorð af Portland Trail Blazers, 105-99. Þetta var 18. sigur Haukanna í röð en liðið heldur áfram að bæta félagsmet með hverjum sigrinum sem það vinnur.

Paul Millsap skoraði 21 stig og tók átta fráköst fyrir Atlanta og Al Horford bætti 17 stigum og átta fráköstum við.

LaMarcus Aldridge átti stórleik í liði Portland með 37 stig og 11 fráköst. Það dugði þó ekki til að þessu sinni. Portland er í 4. sæti Vesturdeildarinnar.

Úrslitin í nótt:

Atlanta Hawks 105-99 Portland Trail Blazers

Boston Celtics 87-93 Houston Rockets

Brooklyn Nets 122-127 Toronto Raptors

Cleveland Cavaliers 101-90 Sacramento Kings

Miami Heat 72-93 Dallas Mavericks

New Orleans Pelicans 108-103 LA Clippers

Philadelphia 76ers 103-94 Minnesota Timberwolves

Phoenix Suns 99-93 Chicago Bulls

Utah Jazz 110-100 Golden State Warriors

Gordon Haywood fór mikinn gegn Golden State Loftfimleikar hjá Jimmy Butler Michael Carter-Williams var með þrennu
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×