Neitar að hafa ætlað að bana unnustu sinni Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 17. september 2014 09:18 Úr Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Vísir/GVA
Tuttugu og þriggja ára karlmaður sem ákærður er fyrir tilraun til manndráps, lýsti yfir sakleysi sínu við þingfestingu málsins sem fram fór í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Maðurinn segist ekki hafa ætlað að bana konunni en kannaðist þó við að hafa veitt henni einstaka áverka. Konan krefst átta milljónum króna í m Manninum er meðal annars gefið að sök að hafa stungið 21 árs gamla unnustu sína þremur stungusárum á heimili þeirra í Grafarholti í júlí síðastliðnum. Maðurinn er sakaður um að hafa veist að unnustu sinni þannig að hún féll við og sparkað í andlit hennar þar sem hún lá á gólfinu, slegið hana í andlitið og inni á baðherbergi íbúðarinnar stungið hana þremur stungum með hnífi í hnakka, háls og kvið. Konan hlaut mjög alvarlega áverka, meðal annars djúpt sár sem gekk í gegnum kviðvegg hennar, inn á kviðarhol og rifu á nýra. Áverkar á andliti hennar voru einnig umtalsverðir, en efri vör hennar rifnaði í sundur, tönn hennar brotnaði og hlaut hún fleyðursár á öðru auga. Ríkissaksóknari höfðar málið á hendur manninum og farið er fram á að hann verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Til vara er maðurinn ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Konan krefst rúmlega átta milljónum króna í bætur. Aðalmeðferð í málinu mun fara fram 7. október.
Mest lesið Endalaus þrautaganga Haraldar eftir svörum Innlent Benedikt Sveinsson er látinn Innlent Tuttugu konur saka Mohamed Al Fayed um kynferðisofbeldi Erlent Höfuðstöðvar nýrrar ríkisstofnunar verða á Hvolsvelli Innlent 20 létust og 450 slösuðust þegar talstöðvarnar sprungu Erlent „Afleitt“ að sjá Yazan gerðan að leiksoppi í deilum ráðherra Innlent Sjálfsagt að skoða að semja við önnur ríki um að hýsa erlenda fanga Innlent Átta ára tók fjölskyldubílinn, ók í Target og fékk sér frappó Erlent Vitorðsmaður viðurkennir að hafa gert það sama og Pelicot Erlent Blöskrar markaðssetning á réttum: „Þetta eru eins og jólin fyrir okkur“ Innlent Fleiri fréttir Sjálfsagt að skoða að semja við önnur ríki um að hýsa erlenda fanga Benedikt Sveinsson er látinn Endalaus þrautaganga Haraldar eftir svörum Höfuðstöðvar nýrrar ríkisstofnunar verða á Hvolsvelli „Afleitt“ að sjá Yazan gerðan að leiksoppi í deilum ráðherra Flugvélarnar sem gerðu Loftleiðir að stórveldi „Engar líkur á öðru en að þau endi á að fá alþjóðlega vernd“ Sjálfstæðismenn í borginni vilja samræmd próf aftur Yazan fær efnismeðferð og talstöðvar sprengdar Ekki séð ástæðu til að leggjast gegn framgangi samgöngusáttmálans „Vottunin verið kölluð láglaunavottun af gárungunum“ Yazan ekki fluttur úr landi og fær efnismeðferð Fólk hafi samband við lögreglu í stað þess að deila sögum á netinu Segja ummæli Quang Le tilhæfulaus og ósönn Grænt ljós á Ekkó en ekki Baldr Sjúklingurinn þurfi að vera með í allri ákvörðunartöku Skipuð forstjóri Náttúrufræðistofnunar Tileinkuðu söng við heilbrigðisráðuneytið Yazan Eigin sannfæring útskýri sögulegan klofning Sjálfstæðismanna Lykilatriði að ræða við börnin og halda sig við staðreyndir Telur íslenska stjórnsýslu hafa brotið lög í máli Yazan Lögregla komin með ágæta mynd af atburðum Hafa auglýst stöðu sveitarstjóra lausa til umsóknar Lögmaður Yazans sakar yfirvöld um lögbrot „Þetta er bara rétt að byrja“ Um sjö milljónir söfnuðust í minningarsjóð með kertasölu Arnar með stöðu sakbornings og boðaður í skýrslutöku Forstjóri nýrrar Umhverfis- og orkustofnunar úr stóriðjunni Ráðist í aðgerðir gegn samskiptaþjónustu sem glæpamenn notuðu Blöskrar markaðssetning á réttum: „Þetta eru eins og jólin fyrir okkur“ Sjá meira