Neitað um skýrslur vegna bankaleyndar - þrjú mál til skoðunar Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 16. mars 2009 18:19
Fjármálaeftirlitið á ekki að grisja þær upplýsingar sem sérstakur saksóknari fær segir þingmaður vinstri grænna. Embættið hefur óskað eftir skýrslum endurskoðenda um gömlu bankanna frá Fjármálaeftirlitinu en verið neitað á grundvelli bankaleyndar. Þrjú mál eru komin inn á borð hjá sérstökum saksóknara. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, segir að embættið sé að byrja rannsóknir í einstökum málum. Þrjú stór mál séu nú til rannsóknar auk annarra minni. Heimildir fréttastofu herma að þau mál sem nú eru til rannsóknar séu tengd tveimur bönkum. Annar þeirra mun vera Kaupþing. Þá eru málin tengd lánveitingum til eigenda og fjármagnsflutningum úr landi. Enn hefur enginn verið kallaður í yfirheyrslur. Ólafur segir að embættið sé að bíða eftir skýrslum endurskoðunarfyrirtækja um gömlu bankanna sem liggja inni hjá fjármálaeftirlitinu, en óskað var eftir þeim um miðjan febrúar. Skýrslurnar skipti máli til að gera sér grein fyrir málunum í heild sinni.Hjá Fjármálaeftirlitinu fengust þær upplýsingar að í skýrslunum væri mikið af þagnarskyldum upplýsingum um atriði sem Fjármálaeftirlitið telur ekki vera lögbrot og því eigi þær ekki erindi til sérstaks saksóknara. Fjármálaeftirlitið hafi nú þegar sent embættinu 4 mál ásamt öllum þeim gögnum sem hefur verið aflað í tengslum við þau, þar á meðal viðeigandi kafla úr skýrslunum.Árni Þór Sigurðsson, þingmaður vinstri grænna, gagnrýndi þann tíma sem hefur tekið fjármálaeftirlitið að bregðast við beiðni saksóknarans. Hann gagnrýndi að Fjármálaeftirlitið grisjaði upplýsingar fyrir sérstakan saksóknara, hann ætti að gera það sjálfur.Dómsmálaráðherra hefur nú lagt fram lagafrumvarp sem felur í sér að sérstakur saksóknari fái auknar heimildir til þess að kalla eftir upplýsingum og gögnum
Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Innlent Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Erlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Innlent Ari þiggur stöðu stjórnarformanns Innlent Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda Innlent Möguleiki á tuttugu stiga hita Veður Fleiri fréttir Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda „Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Sturlaugur nýr bæjarstjóri Akranessbæjar Evrópumet í verðhækkunum og vígbúnaðarkapphlaup Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Sofandi á akbraut Heitavatnslaust í miðborg í kvöld Enn bólar ekkert á fleiri ákærum vegna netverslunar Framkvæmdir við Hvammsvirkjun í vari út árið Almenningur ekki talinn eiga rétt á upplýsingum um ETS-sérlausn Barn réðst með belti á önnur börn Hæstiréttur hafnar beiðni Elju um að taka fyrir meiðyrðamál Virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar fær grænt ljós Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Ferðum Íslendinga til útlanda fækkar Sjá meira