Enski boltinn

Negredo frá í nokkra mánuði

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Alvaro Negredo, sóknarmaður Manchester City, er með brotið ristarbein í fæti og verður af þeim sökum frá næstu mánuðina.

Þetta tilkynnti hann sjálfur á Instagram-síðunni sinni í morgun en hann sagðist þó ætla að koma enn sterkari til baka en áður.

Negredo spilaði í 45 mínútur með City í æfingaleik gegn Hearts um helgina en hann greindi ekki frá því hvernig meiðslin áttu sér stað.

Hann var orðaður við lið í spænsku úrvalsdeildinni í vor en sagðist þá vera ánægður í herbúðum City.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×