Innlent

Nefndin tók ekki afstöðu til pólitískra álitamála

Unnur er fulltrúi Samfylkingarinnar í nefndinni.
Unnur er fulltrúi Samfylkingarinnar í nefndinni.
Unnur G. Kristjánsdóttir, formaður nefndar um erlenda fjárfestingu, segir að efnahags- og viðskiptaráðherra sé bundinn af áliti nefndarinnar ef hún hafnar tiltekinni fjárfestingu. Aftur á móti komi ekki sérstaklega fram í lögum hvort það sama eigi við þegar nefndin samþykkir fjárfestinguna. Nefndin líti til lagalegra atriða en hvorki til pólitískra álitamála né siðferðislegra spurninga í sínum úrskurðum. Í yfirlýsingu segir Unnur að endurskoði þurfi lög um erlenda fjárfestingu. Það hafi legið fyrir frá því að nefndin kom saman í byrjun árs.

Meirihluti nefndarinnar komst í gær að þeirri niðurstöðu að kanadíska orkufyrirtækið Magma Energy megi eiga hlut í HS orku. Kanadamennirnir eiga nú þegar ríflega 40% hlut.

Efnahags- og viðskiptaráðherra er samkvæmt lögunum bundinn af ákvörðun nefndar um erlenda fjárfestingu, segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. Þar segir að Gylfi Magnússon hafi þegar tilkynnt kaupanda niðurstöðuna og að fjárfesting Magma Energy Sweden í HS Orku samrýmist lögunum.


Tengdar fréttir

Gylfi bundinn af ákvörðun nefndar um erlenda fjárfestingu

Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, er samkvæmt lögum um bundinn af ákvörðun nefndar um erlenda fjárfestingu. Hann hefur tilkynnt Magma Energy Sweden AB niðurstöðuna og að fjárfesting fyrirtækisins í HS Orku hf. samrýmist lög.

Marklaus lög

Lög sem takmarka fjárfestingu útlendinga í orkufyrirtækjum eru marklaus fyrst Kanadamenn mega eiga í íslensku orkufyrirtæki. Þetta segir minnihluti nefndar um erlenda fjárfestingu, í bókun sem gerð var á fundi nefndarinnar í gær. Þar var ákveðið að kanadíska félagið Magma Energy megi eiga hlut í HS orku. Meirihluti nefndarinnar, Samfylking, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur telja að fyrirtækið megi fjárfesta hér í gegnum sænskt dótturfélag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×