Fjórir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í gærkvöldi og nótt. LA Clippers átti ótrúlega endurkomu í fyrsta leiknum gegn Memphis Grizzlies og vann, 99-98.
Memphis var með forystu fyrstu 47 mínúturnar í leiknum og var hún mest 27 stig í leiknum. Með því að vinna upp forskotið og klára leikinn jafnaði Clippers met í sögu úrslitakeppninnar.
Rudy Gay hefði getað tryggt Memphis sigurinn en hann brenndi af skoti á lokasekúndu leiksins.
Clippers varð þó fyrir áfalli í leiknum því Caron Butler braut bein í vinstri hendi í leiknum. Nick Young átti þó góða innkomu af bekknum og skoraði nítján stig, þar af þrjá þrista þegar Clippers komst á 26-1 sprett.
Chris Paul hefur átt við meiðsli að stríða en spilaði þó í 38 mínútur í nótt og skoraði fjórtán stig. Blake Griffin var með sautján stig og Butler tólf áður en hann fór meiddur af velli.
LA Lakers er komið 1-0 yfir í rimmu sinni gegn Denver Nuggets eftir sigur í leik liðanna í nótt, 103-88.
Kobe Bryant var með 31 stig en Andrew Bynum náði fyrstu þrefaldri tvennu Lakers í úrslitakeppni í 21 ár. Bynum var með tíu stig, þrettán fráköst og varði tíu skot - alls ellefu prósent af öllum skotum Denver í leiknum.
Atlanta hafði betur gegn Boston, 83-74, í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppni Austurdeildarinnar. Josh Smith var með 22 stig og átján fráköst.
Hæst bar þó í leiknum að Rajon Rondo var rekinn af velli fyrir að stjaka við dómara. Líklegt er að hann verði í banni í næsta leik.
Þegar þarna var komið voru um 40 sekúndur eftir af leiknum og munurinn fjögur stig á liðunum. Atlanta hafði verið með undirtökin í leiknum og náði að klára leikinn.
Besta lið Vesturdeildarinnar, San Antonio, vann svo Utah Jazz í fyrsta leik liðanna í nótt, 106-91. Tony Parker skoraði 28 stig en þetta er í fyrsta sinn í fjögur ár sem San Antonio vinnur opnunarleik sinn í úrslitakeppninni.
Úrslit næturinnar:
San Antonio - Utah 106-91 (1-0) LA Lakers - Denver 103-88 (1-0) Atlanta - Boston 83-74 (1-0) Memphis - LA Clippers 98-99 (0-1)
Leikir kvöldsins:
23:00 Miami - New York (1-0) 23:30 Indiana - Orlando (0-1) - Í beinni á NBA TV 01:30 Oklahoma City - Dallas (1-0)
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Kevin Johnson borgarstjóri Sacramento tilkynnti í gær að eigendur NBA körfuboltaliðsins Sacramento Kings hafa samþykkt að selja hugbúnaðarviðskiptajöfrinum Vivek Ranadive félagið.
Meira
Dirk Nowitzki þýska stórstjarna NBA körfuboltaliðsins Dallas Mavericks hyggst taka á sig verulega launalækkun næsta sumar í von um að lokka aðra stórstjörnu til liðsins.
Meira
Phil Jackson vann fjölmarga NBA-titla með bæði Michael Jordan (6) og Kobe Bryant (5) en hefur hingað til ekki verið mikið fyrir að bera þessa tvo stórbrotnu leikmenn saman eða fyrr en nú. Jackson ber ...
Meira
Sigurður Ingimundarson, þjálfari Íslands- og bikarmeistara Keflavíkur í Dominos-deild kvenna, verður ekki áfram þjálfari meistaraflokka Keflavíkur en hann þjálfaði einnig karlaliðið síðasta vetur. Þet...
Meira
Nýliðar Vals hafa styrkt sig með tveimur leikmönnum fyrir komandi tímabil í Dominos-deild karla í körfubolta en það eru þeir Oddur Birnir Pétursson og Oddur Ólafsson. Þetta kom fyrst fram á karfan.is ...
Meira
Falur Jóhann Harðarson, margfaldur Íslandsmeistari með Keflavík sem bæði leikmaður og þjálfari, er tekinn við sem formaður Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Meira
Tom Thibodeau, þjálfari Chicago Bulls, var ekki sáttur við dómgæsluna í fyrstu þremur leikjunum í einvígi hans manna og Miami Heat í NBA-deildinni í körfubolta og lét nokkur vafasöm orð fjalla á blaða...
Meira
Hið unga lið Golden State Warriors náði í gærkvöldi að jafna metin gegn San Antonio Spurs í rimmu liðanna í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta.
Meira
Íslensku unglingalandsliðin í körfubolta unnu til þrennra silfurverðlaun á Norðurlandamóti unglinga í körfubolta sem lauk í Stokkhólmi í dag. Bæði 18 ára liðin sem og 16 ára lið karla urðu í 2. sæti á...
Meira
Körfuknattleikskappinn Ómar Örn Sævarsson hjá Grindavík var í gær dæmdur í sex mánaða keppnisbann en hann féll á lyfjaprófi. Ómar segist aðeins hafa drukkið tvo sopa af orkudrykk sem liðsfélagi hans á...
Meira
Ein vinsælasta myndin á internetinu í dag er mynd af sturlaðri konu í Miami sem er með miðfingurinn beint fyrir framan andlit Joakim Noah, leikmanns Chicago Bulls.
Meira