NBA: Sigurganga San Antonio á enda | Sjö í röð hjá Miami

Vísir Körfubolti 22. febrúar 2012 09:00
Tim Duncan og Tony Parker voru hvíldir í nótt.
Tim Duncan og Tony Parker voru hvíldir í nótt. Mynd/AP
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar:
Fimm leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt og vakti þar mesta athygli að 11 leikja sigurganga San Antonio Spurs endaði með stórtapi á móti Portland og Miami Heat vann sinn sjöunda "örugga" sigur í röð þegar liðið vann Sacramento Kings.

Portland Trail Blazers vann San Antonio Spurs 137-97 og endaði þar með ellefu leikja sigurgöngu San Antonio Spurs en það hafði auðvitað mikil áhrif að Gregg Popovich, þjálfari Spurs, ákvað að hvíla þá Tim Duncan og Tony Parker. Manu Ginobili var ekki heldur með og það skýrir betur stórsigur Portland. Jamal Crawford skoraði 20 stig fyrir Trail Blazers og þeir Gerald Wallace og Nicolas Batum voru báðir með 19 stig. Kawhi Leonard var atkvæðamestur hjá San Antonio með 24 stig og 10 fráköst. Sðurs-liðið hafði ekki tapað með 40 stigum síðan að liðið steinlá 111-69 á móti Chicago Bulls 5. mars 1997.

Dwyane Wade var með 30 stig og 10 stoðsendingar þegar Miami Heat vann Sacramento Kings 120-108 en Miami-liðið hefur nú unnið sjö leiki í röð og þá alla með 12 stigum eða meira. Mario Chalmers og Chris Bosh voru báðir með 20 stig og LeBron James var með 18 stig og 8 stoðsendingar. Isaiah Thomas skoraði 24 stig fyrir Sacramento, Marcus Thornton var með 23 stig og Tyreke Evans skoraði 21 stig og gaf 10 stoðsendingar.

Roy Hibbert var með 30 stig og 13 fráköst þegar Indiana Pacers vann New Orleans Hornets 117-108 í framlengdum leik. Paul George var með 20 stig og Darren Collison skoraði 18 stig í þriðja sigri Indiana-liðsins í röð en Trevor Ariza skoraði mest fyrir New Orleans eða 21 stig.

Antawn Jamison skoraði 32 stig og nýliðinn Kyrie Irving var með 17 af 25 stigum sínum í fjórða leikhluta í 101-100 endurkomusigri Cleveland Cavaliers á Detroit Pistions. Detroit var 72-55 yfir í lok þriðja leikhluta en liðið var búið að vinna þrjá leiki í röð. Alonzo Gee skoraði 13 stig í fjórða leikhlutanum og hann og Irving voru þá með 30 af 35 stigum Cleveland-liðsins. Brandon Knight skoraði 24 stig fyrir Detroit og Greg Monroe var með 19 stig og 11 fráköst.

Marc Gasol var með 15 stig, 14 fráköst og 7 stoðsendingar þegar Memphis Grizzlies vann Philadelphia 76ers 89-76. Rudy Gay skoraði 14 stig og O.J. Mayo var með 13 stig. Jrue Holiday skoraði 22 stig fyrir Sixers-liðið sem tapaði þarna fjórða leiknum í röð og þeim sjötta af síðustu átta.





NBA: Sigurganga San Antonio á enda | Sjö í röð hjá Miami
Mynd/AP
Úrslit allra leikja í NBA-deildinni í nótt:
Cleveland Cavaliers - Detroit Pistons 101-100
Indiana Pacers - New Orleans Hornets 117-108 (framlengt)
Miami Heat - Sacramento Kings 120-108
Memphis Grizzlies - Philadelphia 76Ers 89-76
Portland Trail Blazers - San Antonio Spurs 137-97

Staðan í NBA-deildinni:Á nba.com eða yahoo.com






Fleiri fréttir - Körfubolti

Körfubolti 25. maí. 2012 10:41

Stórt tap gegn Svíum

Íslenska kvennalandsliðið í körfuknattleik tapaði í dag 80-44 gegn Svíum á Norðurlandamóti...  

Meira
Körfubolti 25. maí. 2012 09:00

Miami Heat í úrslit Austurdeildar | Wade fór á kostum

Miami Heat leikur til úrslita í Austurdeild NBA deildarinnar í körfuknattleik eftir 105- 9...  

Meira
Körfubolti 24. maí. 2012 17:27

Skotsýning hjá íslensku stelpunum og 27 stiga stórsigur á Noregi

Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta byrjar mjög vel á Norðurlandamótinu í Noregi því Ís...  

Meira
Körfubolti 24. maí. 2012 15:30

Hildur sú fyrsta til að taka þátt í fjórum Norðurlandamótum

Hildur Sigurðardóttir verður í eldlínunni með íslenska kvennalandsliðinu í körfubolta sem ...  

Meira
Körfubolti 24. maí. 2012 09:19

NBA í nótt: Philadelphia knúði fram oddaleik

Philadelphia heldur áfram að gera það gott í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta e...  

Meira
Körfubolti 24. maí. 2012 06:30

999 daga bið eftir leik á enda

Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta leikur í kvöld fyrsta leikinn sinn á Norðurlandamót...  

Meira
Körfubolti 23. maí. 2012 09:30

NBA í nótt: Öruggur sigur Miami

Miami er komið í 3-2 forystu í einvígi sínu gegn Indiana í undanúrslitum Austurdeildarinna...  

Meira
Körfubolti 22. maí. 2012 21:30

Skotbardagi eftir leik Thunder og Lakers

Allt varð vitlaust nærri íþróttahöllinni í Oklahoma á sama tíma og áhorfendur voru að yfir...  

Meira
Körfubolti 22. maí. 2012 09:37

NBA í nótt: Oklahoma sló út Lakers

Oklahoma City heldur áfram að gera það gott í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta ...  

Meira
Körfubolti 21. maí. 2012 17:30

Darrell Flake til Þorlákshafnar

Þórsarar hafa fengið liðsstyrk fyrir komandi leiktíð en Darrell Flake hefur gengið til lið...  

Meira
Körfubolti 21. maí. 2012 09:24

San Antonio í úrslit Vesturdeildar | LeBron James fór á kostum

LeBron James fór á kostum í liði Miami Heat í gær þegar liðið lagði Indian í undanúrslitum...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 23:00

NBA: Miami Heat jafnar einvígið gegn Indiana | James og Wade fóru á kostum

Lebron James og Dwyane Wade hafa fengið á sig töluverða gagnrýni að undanförnu og þá sérst...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 14:08

Stelpurnar misstu bronsið úr höndunum í fjórða leikhluta

Íslenska 18 ára landslið kvenna rétt missti af bronsinu eftir naumt þriggja stiga tap á mó...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 13:30

Þrír íslenskir krakkar komust í úrvalslið Norðurlandamótsins

Ísland átti þrjá leikmenn í úrvalsliðum á Norðurlandamóts unglinga í körfubolta í Svíþjóð ...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 11:09

Strákarnir töpuðu illa í úrslitaleiknum - 16 ára stelpurnar í 4. sæti

Íslenska 18 ára landsliðið í körfubolta varð að sætta sig við silfrið á Norðurlandamóti un...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 11:00

NBA: Los Angeles liðin misstu bæði niður góða forystu

Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt og eftir hana eru bæði Los ...  

Meira
Körfubolti 20. maí. 2012 08:00

NM unglinga í körfu: Einn leikur um gull og tveir leikir um brons

Í dag fer fram lokadagurinn á Norðurlandamóti unglinga í körfubolta sem fer eins og venjul...  

Meira
Körfubolti 19. maí. 2012 19:54

Frábær sigur stelpnanna á Finnum dugði ekki - spila um bronsið

Íslenska 16 ára landslið kvenna er að gera frábæra hluti á Norðurlandamótinu undir stjórn ...  

Meira
Körfubolti 19. maí. 2012 14:45

Miami-liðið að brenna yfir - hættu við æfingu og gáfu engin viðtöl

Miami Heat er komið í slæm mál í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta eftir stórtap...  

Meira
Körfubolti 19. maí. 2012 12:40

Falur hættir með Keflavíkurkonur - Sigurður þjálfar bæði liðin

Sigurður Ingimundarson mun þjálfa bæði karla- og kvennalið Keflavíkur Iceland Express deil...  

Meira
Körfubolti 19. maí. 2012 11:00

NBA: Lakers minnkaði muninn og Philadelphia jafnaði

Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt og jókst spenn...  

Meira
Körfubolti 18. maí. 2012 11:25

Fyrsti sigur 18 ára stelpnanna í fimm ár - spila um bronsið

Íslenska 18 ára landslið kvenna vann langþráðan sigur á Norðurlandamótinu í morgun þegar s...  

Meira
Körfubolti 18. maí. 2012 11:12

Strákarnir spila um gullið - fóru illa með Norðmenn

Íslenska 18 ára landsliðið í körfubolta er að gera góða hluti á Norðurlandamótinu í körfub...  

Meira
Körfubolti 18. maí. 2012 09:15

NBA: Góður afmælisdagur hjá Parker - 16. sigur San Antonio í röð

Tony Parker hélt upp á þrítugsafmælið með því að skora 22 stig og hjálpa sínum mönnum í Sa...  

Meira
Körfubolti 18. maí. 2012 09:00

NBA: Útlitið svart hjá Miami eftir skell á móti Indiana

Indiana Pacers er komið í 2-1 á móti Miami Heat eftir öruggan 94-75 sigur í þriðja leik li...  

Meira
Körfubolti 17. maí. 2012 22:12

Þrír sigrar á Norðurlandamóti yngri landsliða í dag

Yngri landslið Íslands í körfubolta stóðu í ströngu á Norðurlandamótinu í körfubolta í Sví...  

Meira
Körfubolti 17. maí. 2012 15:30

Larry Bird náði einstakri þrennu

Larry Bird, forseti Indiana Pacers í NBA-deildinni í körfubolta, var í gær valinn besti fr...  

Meira
Körfubolti 17. maí. 2012 10:00

NBA í nótt: Oklahoma City komið í 2-0 á móti Lakers - Boston vann

Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. Oklahoma City...  

Meira
Körfubolti 16. maí. 2012 22:45

Amare Stoudemire skráði sig í skóla í Miami

Þetta var erfitt tímabil fyrir Amare Stoudemire í NBA-deildinni í körfubolta og hann kórón...  

Meira
Körfubolti 16. maí. 2012 15:30

Derrick Rose gæti misst af öllu næsta tímabili

Derrick Rose sleit krossband í fyrsta leik Chicago Bulls í úrslitakeppni NBA-deildarinnar ...  

Meira
Körfubolti 16. maí. 2012 09:15

NBA: Auðvelt hjá San Antonio í fyrsta leik á móti Clippers

San Antonio Spurs hélt sigurgöngu sinni áfram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolt...  

Meira
Körfubolti 16. maí. 2012 09:00

NBA: Indiana jafnaði á móti Miami

Indiana Pacers jafnaði metin í 1-1 í nótt í undanúrslitaeinvígi Austurdeildarinnar á móti ...  

Meira
Körfubolti 15. maí. 2012 10:30

Phil Jackson bíður við símann eftir atvinnutilboði

Phil Jackson, sigursælasti þjálfari í NBA deildinni í körfubolta, hefur áhuga á að taka að...  

Meira
Körfubolti 15. maí. 2012 09:00

Oklahoma rúllaði yfir LA Lakers | Boston tapaði á heimavelli

Oklahoma City Thunder sýndi styrk sinn gegn LA Lakers í nótt þegar liðin mættust...  

Meira
Körfubolti 14. maí. 2012 23:30

Heimsfriðurinn: Ætlar ekki að biðja Harden afsökunar fyrir einvígið

Metta World Peace, eða Heimsfriðurinn, er búinn að taka út sjö leikja bann fyrir að gefa J...  

Meira
Körfubolti 14. maí. 2012 17:53

Chris Bosh frá í ótilgreindan tíma

Miami Heat tilkynnti í dag að Chris Bosh muni ekki spila með liðinu á næstunni vegna meiðs...  

Meira
Körfubolti 14. maí. 2012 09:00

Kyrie Irving nýliði ársins í NBA-deildinni

Bandarískir fjölmiðlar hafa grafið það upp að Kyrie Irving, leikmaður Cleveland Cavaliers,...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 23:45

Nelson útskrifast fimmtíu árum of seint úr háskóla

Fyrir fimmtíu árum síðan yfirgaf Don Nelson háskólann í Iowa þó svo hann ætti mjög lítið e...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 22:25

Miami vann fyrsta leikinn gegn Indiana

Miami Heat er komið með forskot í rimmunni gegn Indiana Pacers í annarri umferð í úrslitak...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 20:37

Olympiacos vann Evrópudeildina í körfubolta

Gríska liðið Olympiacos sigraði í kvöld Evrópudeildina í körfubolta eftir magnaðan úrslita...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 19:45

Clippers vann oddaleikinn gegn Memphis

LA Clippers er komið áfram í 2. umferð í úrslitakeppni NBA eftir magnaðan sigur, 82-72, á ...  

Meira
Körfubolti 13. maí. 2012 10:59

Lakers vann oddaleikinn | Þreföld tvenna hjá Rondo

Los Angeles Lakers komst í aðra umferð í úrslitakeppni NBA í nótt er liðið lagði Denver í ...  

Meira
Körfubolti 12. maí. 2012 22:57

Shouse og Pálína leikmenn ársins í körfuboltanum

Stjörnumaðurinn Justin Shouse og Keflavíkurmærin Pálína Gunnlaugsdóttir voru valdir bestu ...  

Meira
Körfubolti 12. maí. 2012 17:41

James valinn verðmætasti leikmaður NBA-deildarinnar

LeBron James var í dag valinn verðmætasti leikmaður NBA-deildarinnar. Þetta er í þriðja si...  

Meira
Körfubolti 12. maí. 2012 11:31

Memphis tryggði sér oddaleik gegn Clippers

Liðin frá Los Angeles í NBA-deildinni eru ekki að gera sér auðvelt fyrir því þau eru bæði ...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Sport / Körfubolti / NBA: Sigurganga San Antonio á enda | Sjö í röð hjá Miami