Körfubolti

NBA: Mestar líkur á því að Cleveland verði meistari

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lebron James.
Lebron James. Vísir/Getty
Veðmangarar í Las Vegas telja mestar líkur á því að Lebron James og félagar í Cleveland Cavaliers verði NBA-meistarar í ár en úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta hefst á morgun.

Cleveland Cavaliers endaði með annan besta árangurinn í Austudeildinni og þrjú lið í Vesturdeildinni voru með betra sigurhlutfall en þrátt fyrir það er Cavaliers-liðið efst á blaði.

Lið Golden State Warriors var með langbesta sigurhlutfallið í vetur og strákarnir hans Steve Kerr eru í öðru sæti listans og því þriðja eru NBA-meistarar San Antonio Spurs sem enduðu tímabilið á ellefu sigrum í síðustu tólf leikjum sínum.

Cleveland Cavaliers mætir Boston Celtics í fyrstu umferð úrslitakeppninnar, Golden State Warriors spilar við New Orleans Pelicans og San Antonio Spurs mætir Los Angeles Clippers.

Það eru minnstar líkur á því að þrjú lið í úrslitakeppninni vinni titilinn en það eru lið Milwaukee Bucks, Boston Celtics og Brooklyn Nets sem voru í þremur síðustu sætunum inn í úrslitakeppni Austurdeildarinnar.

Likurnar á lið verði NBA-meistari 2015:

Cleveland Cavaliers    9-4

Golden State Warriors    5-2

San Antonio Spurs    4-1

Atlanta Hawks    12-1

Chicago Bulls    14-1

Los Angeles Clippers    14-1

Houston Rockets    14-1

Memphis Grizzlies    25-1

Toronto Raptors    50-1

Portland Trail Blazers    50-1

Dallas Mavericks    60-1

New Orleans Pelicans    100-1

Washington Wizards    60-1

Milwaukee Bucks    200-1

Boston Celtics    200-1

Brooklyn Nets    200-1

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×