NBA: LeBron spilaði aftur með Cleveland og Lakers vann Phoenix Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. mars 2010 11:00 LeBron James í leiknum á móti Philadelphia í nótt. Mynd/AP
LeBron James spilaði á ný með Cleveland Cavaliers í 100-95 sigri á Philadelphia 76ers í NBA-deildinni í körfubolta í nótt og var með 23 stig, 10 stoðsendingar og 6 fráköst. James missti af tveimur síðustu leikjum liðsins. James hafði misst af tveimur síðustu leikjum toppliðs NBA-deildarinnar.Mo Williams var með 21 stig fyrir Cleveland og Delonte West skoraði 17 stig en Andre Iguodala var með 30 stig fyrir Philadelphia og Elton Brand bætti við 24 stigum.Kobe Bryant skoraði 20 stig, tók 10 fráköst og gaf 8 stoðsendingar þegar Los Angeles Lakers vann 102-96 útisigur á Phoenix Suns. Það var jafnt stigaskor hjá Lakers í nótt því Andrew Bynum skoraði 18 stig og þeir Pau Gasol, Ron Artest og Derek Fisher voru allir með 15 stig. Amare Stoudemire var með 29 stig og 16 fráköst hjá Phoenix.Paul Pierce var með 20 stig og Rajon Rondo bætti við 16 stigum og 11 stoðsendingum þegar Boston komst aftur á sigurbraut með 122-103 sigri á Indiana Pacers. Nate Robinson og Glen Davis voru líka báðir með 15 stig fyrir Boston í leiknum en liðið hafði tapaða tveimur leikjum í röð fyrir leikinn. Roy Hibbert skoraði 23 stig fyrir Indiana.Jermaine O'Neal var með 25 stig og Quentin Richardson bætti við 23 stigum þegar Miami Heat vann 108-95 sigur á Chicago Bulls. Dwyane Wade var með 17 af 22 stigum sínum í seinni hálfleik í þessum sigri sem hjálpaði Miami að komast upp fyrir Toronto og í 7. sætið í Austudeildinni. Þetta var sjöunda tap Chicago í röð en liðið lék án þriggja stigahæstu manna sinna; Derrick Rose, Luol Deng og Joakim Noah.Richard Jefferson fékk aftur að vera í byrjunarliði San Antonio Spurs eftir sjö leikja fjarveru og svaraði því með 19 stigum í 103-85 sigri á Minnesota Timberwolves. George Hill var með 19 stig og 8 stoðsendingar og Tim Duncan skoraði 15 stig og tók 8 fráköst.Kevin Durant braut 30 stiga múrinn í 36.sinn á tímabilinu og skoraði 32 stig í 104-102 sigri Oklahoma City Thunder á New Jersey Nets. Þetta var 16. sigur Oklahoma City í síðustu 19 leikjum.Will Bynum gaf 20 stoðsendingar og Svíinn Jonas Jerebko skoraði 18 stig þegar Detroit Pistons vann 101-87 sigur á Washington Wizards. Bynum varð þarna fyrsti Detroit-maðurinn til þess að brjóta 20 stoðsendinga múrinn síðan að Isiah Thomas afrekaði það árið 1985.Carmelo Anthony var með 32 stig og 12 fráköst þegar Denver vann sinn fimmta sigur í röð nú 102-95 sigur á móti New Orleans Hornets.Úrslit allra leikja í NBA-deildinni í nótt: Charlotte Bobcats-Los Angeles Clippers 106-98 Philadelphia 76Ers-Cleveland Cavaliers 95-100 Boston Celtics-Indiana Pacers 122-103 Miami Heat-Chicago Bulls 108-95 Detroit Pistons-Washington Wizards 101-87 Memphis Grizzlies-New York Knicks 119-112 Minnesota Timberwolves-San Antonio Spurs 85-103 New Orleans Hornet-Denver Nuggets 95-102 Oklahoma City Thunder-New Jersey Nets 104-102 Milwaukee Bucks-Utah Jazz 95-87 Phoenix Suns-Los Angeles Lakers 96-102 Sacramento Kings-Portland Trail Blazers 94-110
Mest lesið Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Fótbolti Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Fótbolti Þá roðnaði Beckham Fótbolti Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Fótbolti Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira