Körfubolti

NBA: Denver felldi Golden State á eigin bragði | Myndbönd

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þetta var erfitt kvöld fyrir Stephen Curry og félaga.
Þetta var erfitt kvöld fyrir Stephen Curry og félaga. Vísir/AP
Denver Nuggets bauð upp á skotsýningu í óvæntum sigri á Golden State Warriors í NBA-deildinni í körfubolta í nótt og Galdrakarlarnir frá Washington slökktu næstum því alveg á Russell Westbrook. Spurs innsiglaði tuttugasta tímabilið í röð þar sem liðið vinnur fleiri leiki en það tapar.

Nikola Jokic var með þrennu þegar Denver Nuggets vann 132-110 sigur á Golden State Warriors en Denver jafnaði NBA-metið með því að skora 24 þriggja stiga körfur í leiknum. Jokic endaði leikinn með 17 stig, 21 frákast og 12 stoðsendingar. Nýliðinn Juancho Hernangomez skoraði 27 stig en hann skoraði alls sex þrista í leiknum. Will Barton var síðan með 24 stig og Jameer Nelson skoraði 23 stig.



Á meðan Denver Nuggets liðið hitti úr 24 af 40 þriggja stiga skotum sínum fóru aðeins 8 af 32 rétta leið hjá Golden State. Stephen Curry hitti sem dæmi aðeins úr 1 af 11 þriggja stiga skotum sínum.  Denver-liðið felldi því Golde State á eigin bragði.

Kevin Durant skoraði 25 stig fyrir Golden State Warriors, Patrick McCaw var með 19 stig og Ian Clark skoraði 18 stig. Stephen Curry skoraði hinsvegar bara 11 stig en hann klikkaði á 14 af 18 skotum sínum. Klay Thompson spilaði ekki.

Kawhi Leonard skoraði 32 stig þegar San Antonio Spurs vann 110-106 útisigur á Indiana Pacers. Þetta var 42. sigur Spurs á tímabilinu og því er það öruggt að liðið vinnur fleiri leiki en það tapar á tuttugasta tímabilinu í röð.

San Antonio bætti með því NBA-met Utah Jazz frá dögum Karl Malone og John Stokckton. Liðið hefur náð þessu á öllum tímabilum frá 1997-98 sem var einmitt nýliðaár Tim Duncan. Utah var með 19 sigur-tímabil í röð frá 1985 til 2004.

LaMarcus Aldridge var með 10 af 19 stigum sínum á síðustu sjö mínútunum og þeir Danny Green, Tony Parker og David Lee skoruðu allir 12 stig í leiknum. Paul George var með 27 stig hjá Indiana og Myles Turner bætti við 22 stigum.



Russell Westbrook var langt undir meðaltölum sínum þegar Oklahoma City Thunder steinlág á móti Washington Wizards 120-98. Westbrook, sem er með þrennu að meðaltali, endaði með 17 stig, 4 fráköst og 4 stoðsendingar. Hann hitti aðeins úr 5 af 19 skotum og hefur ekki skorað minna í leik á tímabilinu þar sem hann var með meðalskor upp á 31,2 stig í leik fyrir leikinn í nótt.

Russell Westbrook spilaði reyndar ekkert eftir miðjan þriðja leikhluta en á þeim kafla klikkaði Thunder-liðið meðal annars á 24 skotum í röð. Washington vann þann kafla 32-5 þar sem Westbrook sjálfur klikkaði á níu skotum í röð.

Bakverðirnir Bradley Beal og John Wall voru í aðalhlutverki hjá Washington-liðinu. Beal skoraði 22 stig og hitti úr 6 af 7 þriggja stiga skotum sínum en Wall var með 15 stig og 14 stoðsendingar.



Isaiah Thomas var með 29 stig og 8 stoðsendingar þegar Boston Celtics vann 111-98 útisigur á Dallas Mavericks. Marcus Smart bætti við 19 stigum og Kelly Olynyk skoraði 7 af 15 stigum sínum í 12-2 spretti liðsins í lokaleikhlutanum. Yogi Ferrell skoraði 20 stig fyrir Dallas.

Blake Griffin var með 26 stig, 10 fráköst og 6 stoðsendingar þegar lið hans Los Angeles Clippers vann 88-72 sigur á Utah Jazz. DeAndre Jordan var með 10 stig og 13 fráköst og sonur þjálfrans, Austin Rivers, skoraði 15 stig.

Mike Conley skoraði 32 stig og Marc Gasol var með 19 stig, 9 fráköst og 8 stoðsendingar þegar Memphis Grizzlies vann 112-103 útisigur á Brooklyn Nets. Þetta var þrettánda tap Brooklyn Nets í röð en Memphis vann í fjórða sinn í síðustu fimm leikjum.





Öll úrslit í NBA-deildinni í nótt:

Denver Nuggets - Golden State Warriors    132-110    

Phoenix Suns - New Orleans Pelicans    108-110    

Utah Jazz - Los Angeles Clippers    72-88    

Dallas Mavericks - Boston Celtics    98-111    

Milwaukee Bucks - Detroit Pistons    102-89    

Washington Wizards - Oklahoma City Thunder    120-98    

Brooklyn Nets - Memphis Grizzlies    103-112    

Miami Heat - Orlando Magic    107-116    

Charlotte Hornets - Philadelphia 76ers    99-105    

Indiana Pacers - San Antonio Spurs    106-110

Portland Trail Blazers - Atlanta Hawks 104-109 (framlenging)

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×