Matur

Nautalund að hætti Evu Laufeyjar

visir.is/skjáskot
Nautalund með piparostasósu og hvítlaukskartöflum

Nautalundirnar

1 kg nautalund, skorin í fjóra jafnstóra bita

svartur pipar og gróft

sjávarsalt

4-5 msk smjör

Hvítlaukskartöflur

5 stórar kartöflur

12 hvítlauksrif

2 msk ólífuolía

1 msk smátt saxað rósmarín

salt og pipar

Piparostasósa

1 askja sveppir

400 ml rjómi

½ piparostur

½ kjúklingakraftsteningur

smávegis af rósmarín,

Ofnbakaður aspas

Grænn ferskur aspas

Salt og pipar

Ólífuolía 

Nautalundir

Bræðið smjörið á pönnu. Kryddið nautalundina með salti og pipar og brúnið vel á öllum hliðum. Setjið hana í eldfast mót og steikið við 200°C í 10 – 12 mínútur. Látið kjötið standa á borðinu í að minnsta kosti 8 mínútur áður en þið berið það fram.

Hvítlaukskartöflur

Hitið ofninn í 200°C. Skolið kartöflurnar og skerið í báta. Leggið kartöflurnar og hvítlauksrifin í eldfast mót, sáldrið ólíuolíu yfir og kryddið til með salti og pipar. Setjið í ofn og bakið í 55-60 mínútur. Hrærið í kartöflunum 2 x 3 á meðan eldun stendur.

Piparostasósa 

Þessa sósa er ljúffeng ein og sér, svo góð er hún. Hún hentar vel með kjöti, kjúkling og pastaréttum. Skerið niður sveppi og steikið upp úr smjöri, kryddið til með salti og pipar. Hellið rjómanum saman og bætið piparostinum út í.

Náið upp suðu og leyfið ostinum að bráðna við vægan hita í nokkrar mínútur. Bætið kjúklingatening við og kryddið til með salti og pipar. Hrærið vel í sósunni og berið fram með kjötinu.

Ferskur aspas

Sjóðið aspasinn í vel söltu vatni í 3 mínútur, takið aspasinn upp úr pottinum og þerrið vel með eldhúspappír. Leggið aspasinn í eldfast mót og sáldrið smá olíu yfir og kryddið til með salti og pipar. Bakið við 200°C í 3 – 4 mínútur.

Njótið vel. 


Tengdar fréttir

Keppt um bestu smákökuna

KYNNING: Smákökusamkeppni KORNAX hefur verið haldin í aðdraganda jóla undanfarin ár.

Ofnbakaður hunangslax á spínatbeði með dillsósu

Fiskur er frábær fæða, bæði mjög hollur og góður. Það er tilvalið að nota fiskmeti í salöt og þetta laxasalat á eftir að koma ykkur á óvart. Hunangslax á spínatbeði með stökkum pekanhnetum og dillsósu.

Sjávarréttapasta í hvítvínssósu á 15 mínútum

Í síðasta þætti af Matargleði eldaði ég súper einfalt og bragðmikið sjávarréttapasta sem allir ættu að prófa. Spaghettí með humri, risarækjum, chili, hvítlauk og hvítvíni. Virkilega ljúffengt!

Sænskar kjötbollur með öllu tilheyrandi

Í síðasta þætti var sænsk matargerð í aðalhlutverki og útbjó ég meðal annars sænskar kjötbollur með kartöflum, brúnni sósu, sultu og súrum agúrkum. Virkilega ljúffengt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×