Naumur sigur Frakka á Slóvenum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. janúar 2012 18:45 David Spiler í baráttunni við Daniel Narcisse. Nordic Photos / AFP
Frakkland er rétt eins og Ísland komið á blað í milliriðli 2 á EM í Serbíu en liðið vann í dag afar nauman sigur á Slóveníu, 28-26. Slóvenar byrjuðu betur í leiknum og voru skrefi framar nánast allan fyrri hálfleikinn. Frakkar náðu þó að minnka muninn fyrir hálfleik en staðan að honum loknum var 15-14, Slóvenum í vil. Jafnt var á nánast öllum tölum eftir þetta en Frakkar náðu að síga fram úr með öflugri vörn og markvörslu á síðustu fimm mínútum leiksins. Þá náðu Slóvenar að skora aðeins eitt mark. Thierry Omeyer, markvörður Frakka, átti góðan dag og varði mikilvægt skot úr hraðaupphlaupi Slóvena þegar rúm mínúta var til leiklsloka. Þá var staðan 27-26 fyrir Frakka. Slóvenar fengu svo aftur tækifæri til að skora úr hraðaupphlaupi og jafna þar með metin þegar 40 sekúndur voru eftir en slóvenski hornamaðurinn fékk dæmda á sig línu. Frakkar héldu í sókn og Jerome Fernandez tryggði Frökkum endanlega sigurinn með marki þegar örfáar sekúndur voru til leiksloka. Þetta eru góðar fréttir fyrir Ísland. Ef strákarnir okkar ætla sér að fara áfram verða þeir helst að vinna alla sína leiki, treysta á að Króatar geri slíkt hið sama en Slóvenar mega þá ekki fá meira en þrjú stig úr sínum leikjum í milliriðlinum. Xavier Barachet skoraði sex mörk fyrir Frakka í dag og Omeyer varði fjórtán skot í markinu. Hjá Slóveníu var Luka Zvizej markahæstur með sex mörk en Primoz Prost varð fimmtán skot.Úrslit, dagskrá og staðan í öllum riðlum.
Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira