Fótbolti

Naumur sigur á heimavelli hjá Lokeren

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Ari Freyr í leik með íslenska landsliðinu.
Ari Freyr í leik með íslenska landsliðinu. Vísir/Getty
Ari Freyr Skúlason lék allar 90. mínúturnar í 2-1 sigri Lokeren gegn Kortrijk en Sverrir Ingi Ingason kom inn af bekknum í hálfleik.

Lokeren sem var búið að tapa tveimur leikjum í röð fyrir leikinn komst 2-0 yfir í fyrri hálfleik.

Sverrir kom inn í seinni hálfleik en gestirnir frá Kortrijk minnkuðu muninn á 92. mínútu.

Lengra komust þeir ekki og fögnuðu Lokeren-menn því sigri eftir tvo leiki í röð án sigurs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×