Innlent

Nauðgunarsinninn hættir við

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Roosh Vorek hefur áhyggjur af öryggi fylgjenda sinna og hefur því hætt við að stefna fylgjendum sínum saman.
Roosh Vorek hefur áhyggjur af öryggi fylgjenda sinna og hefur því hætt við að stefna fylgjendum sínum saman.
Roosh Vorek, umdeildur bandarískur rithöfundur og sjálfskipaður „pickup artist“, hefur hætt við að stefna fylgjendum sínum saman á laugardaginn þar sem hann kveðst „ekki geta tryggt öryggi eða einkalíf þeirra manna sem vilja mæta.“

Greint er frá málinu á vef Guardian en Roosh ætlaði meðal annars að stefna íslenskum fylgjendum sínum saman og áttu þeir að koma að styttunni af Leifi Eiríkssyni við Hallgrímskirkju. Þá var Vorek einnig búinn að skipuleggja viðburði víða annars staðar um heiminn, til að mynda í Ástralíu, Bandaríkjunum og Bretlandi.

Vorek er vægast sagt umdeildur og mætir oftar en ekki andstöðu hvert sem hann fer. Hann er annálaður andfemínisti og lýsingar hans á kynlífsathöfnum sínum minna margar hverjar heldur á lýsingar á nauðgunum.

Árið 2011 kom Vorek hingað til lands og gaf í kjölfarið út bókina Bang Iceland þar sem hann ráðleggur karlmönnum hvernig þeir eigi að haga sér til að ná að sænga hjá íslensku kvenfólki eftir nótt í miðbæ Reykjavíkur.

Eins og áður segir áttu íslenskir fylgjendur Vorek að koma saman við Hallgrímskirkju á laugardagskvöld en svo virðist sem ekkert verði nú á því. Á sama tíma og sama stað var búið að boða til mótmæla vegna fundarins, líkt og gert hefur verið víða annars staðar um heim þar sem búið var að boða til sambærilegra funda.

„Eins og ég sé þetta, þá getur alls kyns óþverri fengið að þrífast hér á landi ef fólk stendur aðgerðalaust hjá. Ef manni mislíkar eitthvað þýðir ekki að standa aðgerðalaus hjá,“ sagði Brynhildur Yrsa Guðmundsdóttir ein skipuleggjanda mótmælanna í viðtali við Fréttablaðið í vikunni.


Tengdar fréttir

Mótmæla fundi manns sem hvetur karlmenn til nauðgana

Hópur fólks hefur boðað komu sína við styttu Leifs Eiríkssonar við Hallgrímskirkju og ætlar að mótmæla fyrirhuguðum fundi fylgismanna Roosh Vorek. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fylgist með fundinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×