Innlent

Náttúran í öllu sínu veldi

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Bárðarbunga í norðvestanverðum Vatnajökli
Bárðarbunga í norðvestanverðum Vatnajökli VÍSIR/GRAFÍK
Þrír stórir jarðskjálftar (>3) hafa orðið í grennd við Bárðarbungu í dag, sá stærsti um 4,0 að stærð og er það í annað sinn síðan jarðhræringarnar hófust sem skjálfti mælist af þeirri stærð. Hann er jafnframt sá stærsti sem mælst hefur í vikunni en jarðvísindamenn telja skjálftana líklega stafa af sigi í öskjunni sjálfri vegna kviku sem er á hreyfingu undir jöklinum.

Í samtali við Vísi segir Sara Barsotti, fagstjóri eldfjallavár hjá Veðurstofu Íslands, að skjálftarnir hafi átt upptök sín á töluvert grynnra dýpi en bróðurpartur þeirra rúmlega 3000 skjálfta sem riðið hafa yfir svæðið á síðustu dögum. Skjálftavirknin, sem fram til þessa hefur færst til norðurs og austur, virðist vera að leita aftur að upptakasvæði skjálftanna.

Sara segir að þrýstingsmunur á svæðinu undir norðvesturhluta Vatnajökuls kunni að skýra að kvikuhreyfingarnar. Fljótandi kvikan leitast við að jafna út þrýstinginn í berginu og jarðhræringarnar komið til er askjan reyndi að laga sig að breytingunum. Býst hún við að með hreyfingu kvikunnar hafi holrými myndast undir sjáfri öskjunni með þeim afleiðingum að hún hafi tekið síga.

Önnur tilgáta, sem studd er aflögunarmælingum (GPS), er að 25 kílómetra langur berggangur sé að myndast undir Dyngjujökli. Samtúlkun nýjustu gagna bendi til þess að gangurinn sé að víkka við norð-austurendann en gangurinn hefur þó lítið lengst undanfarinn sólarhring.

Flekahreyfingar hafi einnig getað sett strik í reikninginn en norðvesturhluti Vatnajökuls hvílir á flekamótum Norður-Ameríku- og Evrópuflekanna.

Jarðskjálftamælingar styðja að þó kvikan sé enn á 5 til 10 kílómetra dýpi og ekki eru merki um að virknin sé að færast ofar.


Tengdar fréttir

Virknin gengur áfram í bylgjum

Skjálftavirkni í kringum Bárðarbungu er enn mikil en þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Hættumat Bárðarbungu enn óklárað

Vinna við sérstakt hættumat fyrir Bárðarbungu hófst 2012 en er enn ólokið. Eldstöðin er í flokki með Heklu, Kötlu og Grímsvötnum sem hættulegustu eldfjöllin. Um 900 skjálftar voru mældir við Bárðarbungu árið 2010 og umbrotin nú því framhald mun stærri atburðarásar.

Skjálfti upp á 4,0 stig

Tveir nokkuð stórir jarðskjálftar urðu nærri Bárðarbungu fyrir hádegi í dag.

Norðmenn spá í öskuna

Eldgoss í Bárðarbungu gæti haft víðtæk áhrif á flugsamgöngur í Evrópu að mati veðurfræðings hjá norsku veðurstofunni.

Kvika talin streyma inn í eldstöðina af miklu afli

Almannavarnir lýstu í kvöld yfir hættustigi norðan Dyngjujökuls og hafa ákveðið að hálendið þar verði rýmt. Mikið magn kviku er talið streyma upp í Bárðarbungueldstöðina.

Ábyrgðin hefur verið færð yfir á flugrekendur

Ábyrgðin á því að fljúga þar sem hætta getur verið á eldfjallaösku í lofti, verður færð frá flugmálayfirvöldum yfir á flugrekendurna sjálfa samkvæmt nýrri reglugerð Alþjóða flugmálastofnunarinnar, sem tekur gildi í nóvember.

Aðgerðir koma illa við ferðaþjónustuna

Hræringarnar undir Bárðarbungu þegar haft mikil áhrif á samfélagið, meðal annars á ferðaþjónustu. Rauði krossinn er búinn undir hamfarir eins og aðrir viðbragðsaðilar.

Hratt kvikuflæðið á við hálfa Þjórsá

Hraunelfan sem streymir úr iðrum Bárðarbungu er að umfangi álíka og flæði hálfrar Þjórsár og hefur þegar myndað 25 kílómetra langan berggang undir Vatnajökli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×