Sport

Nær Muguruza að leggja að velli Williams aftur?

Serena Williams getur unnið sinn 21. risatitil á ferlinum.
Serena Williams getur unnið sinn 21. risatitil á ferlinum. vísir/getty
Serena Williams stefnir að því að vinna sinn 21. risatitil á ferlinum í dag þegar hún mætir Garbine Muguruza frá Spáni í úrslitum Wimbledon mótsins í tennis. Muguruza hefur aldrei unnið stórmót á ferlinum.

Þetta er í áttunda sinn sem Williams leikur til úrslita á Wimbledon mótinu en með sigri verður Williams handhafi allra risatitlana á sama tíma.

Williams hefur hins vegar aldrei unnið alla risatitlana á sama ári en þetta er þriðja risamótið á árinu. Fram til þess hefur Williams unnið bæði Opna franska meistaramótið og Opna ástralska.

Muguruza vann hins vegar Williams þegar þær mættust í 2. umferð á Opna franska meistaramótinu í fyrra og það nokkuð þægilega, 6-2 og 6-2. Williams var á mikilli sigurgöngu þegar kom að þessu tapi.

"Þetta tap opnaði augu mín. Sum töp reita mann til reiðis en maður lærir af öðrum töpum. Þetta tap er það sem ég hef lært mest af í langan tíma," segir Williams.

Úrslitaleikurinn hefst kl. 13:00 í dag og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×