Erlent

Myndband af vígamönnum ISIS í orrustu

Samúel Karl Ólason skrifar
Maðurinn sem ber myndavélina er kallaður Abu Radhwan.
Maðurinn sem ber myndavélina er kallaður Abu Radhwan.
Meðlimir Peshmerga sveita Kúrda fundu GoPro myndavél sem vígamaður Íslamska ríkisins hafði borið á höfði sínu í orrustu í Írak. Myndskeið úr myndavélinni sýna allt aðra mynd af vígamönnum hryðjuverkasamtakanna en áróðursmyndbönd þeirra.

Á myndbandinu má sjá vígamenn rífast sín á milli í miðri orrustu og er einn þeirra húðskammaður eftir að hafa hleypt af byssu sinni inn í farartæki þeirra. Vígamennirnir skjóta út í loftið og eru óvinir þeirra hvergi sjáanlegir en eftir að sókn þeirra er stöðvuð hörfa þeir.

Orrustan var háð í desember samkvæmt Vice News, komu höndum yfir myndbandið, og var hún háð um 50 kílómetra norður af Mosul.

Myndbandið byrjar á því að vígamaður er sendur í sjálfsmorðsárás gegn stöðu Kúrda og fylgja hinir eftir á farartækjum sem hafa verið gerð brynvörð. Hægt er að horfa á það hér að neðan, en vert er að vara við því að það gæti vakið óhug.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×