FIMMTUDAGUR 23. MAÍ NÝJAST 01:00

Aldrei sneggri við andlitságræðslu

FRÉTTIR

Myndar allt fyrir danska hönnuðinn Henrik Vibskov

Fréttablaðið Tíska og hönnun 29. apríl 2012 11:00
Ljósmyndarinn Hörður Ellert Ólafsson er kominn í vinnu hjá hönnuðinum Henrik Vibskov og var meðal annars meðhönnuður í bók um kappann sem kemur út í Þýskalandi í dag.
Ljósmyndarinn Hörður Ellert Ólafsson er kominn í vinnu hjá hönnuðinum Henrik Vibskov og var meðal annars meðhönnuður í bók um kappann sem kemur út í Þýskalandi í dag.
„Þetta er mjög gaman og ég er umvafinn jákvæðu og listrænu fólki hérna," segir ljósmyndarinn og grafíski hönnuðurinn Hörður Ellert Ólafsson sem starfar sem eins konar hirðljósmyndari hjá danska hönnuðinum Henrik Vibskov.

Hörður kynntist Vibskov fyrir tveimur árum er hönnuðurinn var með vinnubúðir á Lunga-hátíðinni á Seyðisfirði. Í kjölfarið héldu þeir sambandi en Hörður hóf svo störf hjá Vibskov í byrjun árs. „Hann hafði samband við mig í haust og sagði að sig vantaði mann eins og mig í vinnu. Ég byrjaði svo í janúar og hef verið að gera allt fyrir hann, bæði mynda auglýsingar og tískusýningar," segir Hörður sem býr í Árósum þar sem hann stundar nám í nýsköpunar- og verkstjórnun í Kaospilot-skólanum. „Þetta felur í sér mikið flakk og mikla vinnu, en ég er bara þessi týpíski Íslendingur sem á ekki erfitt með að vera með marga bolta í loftinu í einu."

Danski fatahönnuðurinn Henrik Vibskov er frægur fyrir framúrstefnulega hönnun. Fatnaður hans fæst um allan heim og er hann þekktur fyrir að blanda saman list og tísku á skemmtilegan hátt. Enn sem komið er er Vibskov eini skandinavíski hönnuðurinn á dagskrá tískuvikunnar í París þar sem hann sýnir við góðar undirtektir.

Auk þess að mynda tískusýningar Vibskov er Hörður meðhönnuður í bók um danska fatahönnuðinn sem kemur út í dag á vegum þýska útgáfurisans Gestalten. Bókin nefnist Henrik Vibskov og fjallar um seinustu 10 ár í hönnunarlífi Vibskov. Bókin er hátt í 300 blaðsíður og sett upp með óhefðbundnu sniði. „Henrik er þekktur fyrir að fara óhefðbundar leiðir í hönnun sinni og í stað þess að setja bókina upp eftir tímaröð þá er hún sett upp í litaröð. Ég er mjög ánægður með hana og á von á því að hún eigi eftir að fást á Íslandi," segir Hörður sem var á leiðinni frá Kaupmannahöfn til Berlínar í lest þegar Fréttablaðið náði af honum tali en útgáfu bókarinnar verður fagnað þar í kvöld. „Það verður risagjörningur frá Henrik og heljarinnar partí, en við erum stór hópur frá Kaupmannahöfn á leiðinni þangað núna."

Herði líkar lífið vel í Danaveldi og er ekkert á leiðinni heim. Auk þess að starfa fyrir Vibskov og vera í námi er Hörður einnig duglegur að þeyta skífum á ýmsum skemmtistöðum. „Það er allt annað að vera að vinna hér en heima. Danir eru heiðarlegir og ég hef til dæmis aldrei lent í vandræðum með að fá borgað en það er því miður ekki hægt að segja það sama um Ísland."

alfrun@frettabladid.is

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Tíska og hönnun 13. maí 2013 11:00

Skræpóttar og sumarlegar

Þessi síðkjóll frá Lovers + Friends fer leikkonunni Oliviu Munn afar vel en hann er heldur ekkert slor á ofurfyrirsætunni Alessandra Ambrosio. Meira
Tíska og hönnun 13. maí 2013 09:00

Prinsessan endurnýtir enn einn kjólinn

Kate Middleton, hertogynjan af Cambridge, mætti í brúðkaup vina sinna á Englandi um helgina í doppóttum kjól frá Topshop. Meira
Tíska og hönnun 13. maí 2013 11:00

Gallabuxur lengi lifi

Gallabuxnaefnið verður ríkjandi í sumartískunni aftur í ár. Gallajakkar, gallabuxur, gallaskyrtur, gallasamfestingar og gallastuttbuxur; öllu þessu má nú klæðast saman án þess að notkun gallaefnisins ... Meira
Tíska og hönnun 11. maí 2013 13:00

Suri Cruise með eigin tískulínu

Suri Cruise, sjö ára dóttir Tom Cruise og Katie Holmes, er búin að skrifa undir samning um að hanna eigin tískulínu. Meira
Tíska og hönnun 11. maí 2013 12:00

Glæsilegar í grænu

Leikkonan Diane Kruger og söngkonan Mollie King eru með puttann á tískupúlsinum. Meira
Tíska og hönnun 11. maí 2013 12:00

Skínandi sumarlitir

Hönnuðir heimsins voru flestir hverjir sammála um að flíkur með svokallaðri málmáferð væru nauðsynlegar í fataskápinn fyrir sumarið. Hið fornfræga tískuhús Burberry setti tóninn er hinn klassíski rykf... Meira
Tíska og hönnun 10. maí 2013 15:45

Leit hafin að fyrirsætum fyrir hársýningu helgarinnar

"Ein af fyrirsætum Elite sem verða í hársýningu TIGI er Sigurlaug Birna Guðmundsdóttir en hún vann Elite Model Look 2012 hérlendis sem er ein stærsta fyrirsætuleit heims og fór hún áfram í lokakeppnin... Meira
Tíska og hönnun 10. maí 2013 12:00

Djarfasti partíkjóll í heimi

Glamúrmódelið Courtney Stodden er ekki þekkt fyrir að hylja líkama sinn með efnismiklum fötum. Hún toppaði sjálfa sig samt alveg þegar hún fór í partí í Hollywood í vikunni. Meira
Tíska og hönnun 09. maí 2013 11:00

Keyptu sér eins samfestinga

Hinar hæfileikaríku Gabrielle Union og Julianne Hough eru ekki með sama stílista en náðu samt að klæðast eins samfestingum á rauða dreglinum. Meira
Tíska og hönnun 09. maí 2013 09:00

Best klæddar í Met-galaveislunni

Það var sannkölluð tískuveisla í New York á mánudagskvöldið þegar árlega Met-galaveislan var haldin hátíðleg. Meira
Tíska og hönnun 09. maí 2013 09:00

Tískuáhuginn lítill

Edda Óskarsdóttir situr fyrir í myndaþætti í franska tímaritinu Madame Figaro. Hún segir fyrirsætustarfið skemmtilegt en hyggur á læknisnám í framtíðinni. Meira
Tíska og hönnun 08. maí 2013 22:30

Indiska opnar á Íslandi

Meðfylgjandi myndir voru teknar í dag þegar sænska verslunarkeðjan Indiska opnaði formlega verslun í Kringlunni en keðjan státar nú af 90 búðum viðs vegar um Norðurlönd. Eins og sjá má var vel mætt í ... Meira
Tíska og hönnun 08. maí 2013 09:00

Sjokkeraði með silfurlitað hár

Athafnakonan Nicole Richie stal svo sannarlega senunni á Met-galadansleiknum sem haldinn var í New York á mánudagskvöldið. Meira
Tíska og hönnun 08. maí 2013 06:00

Hlutu dönsku snyrtivöruverðlaunin

Íslensku EGF-húðvörurnar frá Sif Cosmetics hlutu á dögunum dönsku snyrtivöruverðlaunin í flokki lúxushúðvara fyrir líkamann. Meira
Tíska og hönnun 06. maí 2013 14:00

Vel heppnuð opnun hjá Rebekku og Dúsu

Fatahönnuðirnir Rebekka Jónsdóttir og Dúsa Ólafsdóttir opnuðu nýja verslun á föstudag. Meira
Tíska og hönnun 05. maí 2013 11:00

Í eins kápum í London

Hinar hæfileikaríku Gwen Stefani og Kourtney Kardashian eru báðar stórglæsilegar í þessari kápu frá Kelly Wearstler. Meira
Tíska og hönnun 03. maí 2013 11:00

Ofurpæjur takast á

Leikkonurnar Allison Williams og Jennifer Aniston púlla þennan top frá Christian Dior báðar. Meira
Tíska og hönnun 02. maí 2013 13:30

Skipuleggur flóamarkað í Kópavogi

Berglind Häsler segir ekki allt þurfa að gerast innan póstnúmers 101. Hún skipuleggur flóamarkað sem fer fram í húsnæði við Nýbýlaveg um helgina. Meira
Tíska og hönnun 02. maí 2013 17:00

Vinsæll herratískubloggari

"Áhuginn á tísku kviknaði í menntaskóla en þá lagði maður jogginggallann á hilluna og fór að spá í hverju maður klæddist,“ segir Sindri Snær Jensson, tískubloggari og knattspyrnumarkmaður, sem h... Meira
Tíska og hönnun 27. apríl 2013 16:15

Kampavín og kosningar - Freebird opnar á Laugavegi

Meðfylgjandi myndir voru teknar í svokölluðum "Champagne Brunch" í formlegri opnun á nýrri Freebird verslun að Laugavegi 46 í hádeginu í dag. Eins og sjá má á myndunum voru gestir áberandi glaðir í ko... Meira
Tíska og hönnun 22. apríl 2013 14:30

Glæsileg útskriftarsýning fatahönnuða

Útskriftarnemar í fatahönnun við Listaháskóla Íslands sýndu útskriftarverkefni sín í Hafnarhúsinu á föstudagskvöldið. Sýningin var vel sótt og almenn hrifning ríkti. Daníel Rúnarsson, ljósmyndari Frét... Meira
Tíska og hönnun 20. apríl 2013 10:00

Best klædda ólétta kona heims

Tímaritið Vanity Fair er búið að taka saman lista yfir best klæddu óléttu konurnar í heiminum. Það kemur lítið á óvart að hertogynjan af Cambridge, Kate Middleton, trónir á toppnum. Meira
Tíska og hönnun 20. apríl 2013 07:00

Skálmastutt í sumar

Stuttbuxur sáust víða á sýningarpöllum þegar vorlínur þessa árs voru kynntar. Stuttbuxur eiga sérlega vel við íslenska veðráttu því þannig má fá sól á hvíta fótleggi án þess að hafa áhyggjur af gáskaf... Meira
Tíska og hönnun 19. apríl 2013 15:00

Dásamleg í dragt

Leikkonan Carey Mulligan stal senunni í boði á vegum Tiffany & Co. í New York í gærkvöldi. Meira
Tíska og hönnun 18. apríl 2013 12:00

Sýnir línurnar í GQ

Leikkonan Rosario Dawson er sjóðandi heit í maíhefti tímaritsins GQ. Þar situr hún fyrir í ansi efnislitlum klæðnaði. Meira

Tarot

  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Lífið - Yfir / Tíska og hönnun / Myndar allt fyrir danska hönnuðinn Henrik Vibskov
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000