Handbolti

Munu þessi frægu orð Barkley um Angóla eiga við í kvöld?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Íslenska handboltalandsliði og Barkley.
Íslenska handboltalandsliði og Barkley. Vísir/Samsett/Getty
Ísland mætir Angóla á HM í handbolta í kvöld og ætti að ná þar í fyrsta sigur sinn á heimsmeistaramótinu í Frakklandi. Það voru samt engin Charles Barkley stælar í strákunum okkar fyrir leikinn.

Charles Barkley hefur látið margt flakka í gegnum árum og kjafturinn á honum var alltaf í aðalhlutverki á hans ferli og svo enn meira eftir að ferlinum lauk.

Eitt af frægari ummælum Charles Barkley voru fyrir fyrsta leik bandaríska draumaliðsins á Ólympíuleikunum í Barcelona 1992.

Charles Barkley var þá mættur til Spánar með bestu körfuboltamönnum heims en NBA-leikmenn fengu þá í fyrsta sinn að vera með á Ólympíuleikum.

Bandaríkjamenn voru þá með Michael Jordan, Magic Johnson, Larry Bird, David Robinson, Karl Malone og Scottie Pippen í sama liði og upptalningunni er langt í frá að vera lokið.

Í liðinu voru einnig Patrick Ewing, Clyde Drexler, John Stockton, Chris Mullin, Christian Laettner og svo að sjálfsögðu Barkley sjálfur.

Fyrsti leikurinn á mótinu var síðan leikur á móti Afríkuríkinu Angóla og fyrsta spurning til Barkley var hvað hann vissi um lið Angóla.

Svar Charles Barkley var stutt og laggott: „Ég veit ekkert um Angóla en það eina sem ég veit er að Angóla á von á vandræðum,“ sagði Charles Barkley.

Bandaríska landsliðið vann leikinn með 68 stiga mun (116-48) og skoraði um tíma 46 stig gegn einu. Eina stig Angólamanna á þeim tíma kom á vítalínunni eftir að Charles Barkley fékk á sig óíþróttamannslega villu.

Charles Barkley    var stigahæstur í bandaríska liðinu í leiknum með 24 stig og auk þess að taka 6 fráköst og gefa 5 stoðsendingar. Michael Jordan lét sér nægja að skora 10 stig en var með 8 stolna bolta. Karl Malone var næststigahæstur með 19 stig.

Enginn íslensku landsliðsmannanna í handbolta kom skiljanlega með „Charles Barkley“ ummæli um Angóla í gær en íslenska landsliðið mætir einmitt Angóla á HM í handbolta í kvöld.

Íslenska liðið er enn að bíða eftir sínum fyrsta sigurleik á móti og hann ætti að koma í kvöld á móti langlélegasta liði riðilsins. Íslendingar vona því að Angóla eigi von á vandræðum í Metz höllinni í kvöld.

Hér fyrir neðan má síðan sjá myndband með þessum heimsfrægu ummælum Charles Barkley frá sumrinu 1992.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×