Viðskipti innlent

Mun hafa fjárhagslegar afleiðingar fyrir bankana

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Bæði Íslandsbanki og Arion banki segja að verði það niðurstaða íslenskra dómstóla að lánveitandi hafi ekki upplýst neytandann nægjanlega vel um áhrif verðtryggingaákvæðis í lánasamningi kunni það að hafa fjárhagslegar afleiðingar fyrir bankana. Báðir bankarnir segja þó að eiginfjárhlutfall bankans verði eftir sem áður yfir eiginfjárviðmiðum Fjármálaeftirlitsins.

Þetta eru viðbrögð bankanna við ráðgefandi áliti EFTA sem birti þá niðurstöður í morgun að ekki hafi mátt miðað við núll prósent verðbólgu þegar heildarlántökukostnaður og árleg hlutfallstala kostnaðar er reiknað í lánaskilmálum.

Sævar Jón Gunnarsson stefndi Landsbankanum vegna verðtryggðs neytendaláns til fimm ára, að fjárhæð 630 þúsund krónur, sem var tekið í nóvember 2008. Sævar stefndi Landsbankanum vegna þess að greiðslubyrði lánsins reyndist talsvert hærri en ráð var fyrir gert í greiðsluáætluninni. Taldi hann ákvæði um verðtryggingu ekki standast lög. Héraðsdómur taldi vafa leika á því hvernig bæri að skýra 12. grein laga um neytendalán og hvort heimilt væri við útreikning heildarlántökukostnaðar að miðað við 0 prósent verðbólgu.  

Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi Landsbankans, segir að búast megi við fréttatilkynningu með viðbrögðum bankans innan skamms. 


Tengdar fréttir

Máttu ekki miða við núll prósent verðbólgu

Þegar lánssamningur er bundinn við vísitölu neysluverðs, samrýmist það ekki tilskipun 87/102/EBE að miðað sé við 0% verðbólgu við útreikning á heildarlántökukostnaði og árlegri hlutfallstölu kostnaðar ef þekkt verðbólgustig á lántökudegi er ekki 0%. Þetta segir í ráðgefandi áliti EFTA-






Fleiri fréttir

Sjá meira


×