Fótbolti

Moyes: Við áttum að vinna þennan leik

Moyes á hliðarlínunni í kvöld.
Moyes á hliðarlínunni í kvöld.
David Moyes, stjóri Man. Utd, var svekktur að fara aðeins með eitt stig heim frá Spáni í kvöld. Man. Utd gerði þá markalaust jafntefli gegn Real Sociedad.

Robin van Persie klúðraði víti í leiknum og Chicharito fór einnig illa með gott færi.

"Við fengum klárlega færin til þess að vinna leikinn. Við stýrðum leiknum og fengum færi til þess að koma okkur í algjöra úrvalsstöðu í leiknum. Við áttum að vinna þennan leik," sagði Moyes eftir leik.

Marouane Fellaini fékk að líta rauða spjaldið undir lokin. Hann fékk þá sitt annað gula spjald.

"Mér fannst þetta vera strangur dómur og reyndar fannst mér vera fullt af furðulegum dómum í þessum leik. Áhorfendur sáu um flauta mikið af aukaspyrnum í þessum leik."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×