Enski boltinn

Mourinho: Hazard hefur ekki áhuga á Real

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Jose Mourinho, stjóri Chelsea, hefur engar áhyggjur af áhuga Real Madrid á Belganum Eden Hazard.

Zinedine Zidane viðurkenndi nýverið að Real væri að fylgjast með kappanum sem þykir vera einn allra besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar.

Hazard skrifaði nýverið undir nýjan fimm og hálfs árs samning við Chelsea en Mourinho hefur áður sagt að allir leikmenn séu falir fyrir ákveðna upphæð.

„Hann er nýbúinn að semja til 2021. Það miðaði enginn byssu á hann. Ég held að hann hafi ekki áhuga á að fara annað,“ sagði Mourinho við enska fjölmiðla.

Zidane sagði að Hazard væri í hópi þriggja bestu ungu leikmanna heims og er talið að Real sé nú að reyna að lokka kappann yfir til Spánarmeistaranna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×