Enski boltinn

Mourinho: Fagna eins og lítið barn

Jose Mourinho, stjóri Chelsea, er enn svangur þó svo honum hafi takist að landa einum titli með liði sínu í gær.

Hann er harðákveðinn í því að landa fleiri titlum í vetur og er ansi líklegt að hann geri það. Staða liðsins í ensku deildinni er til að mynda ansi vænleg.

„Ég er eins og lítið barn að fagna þessum fyrsta titli," sagði Mourinho kátur eftir leikinn í gær en þetta var 21. titillinn á hans ferli.

Hann er búinn að vinna sjö titla í heildina með Chelsea en hann var stjóri liðsins frá 2004 til 2007 og snéri svo til baka árið 2013.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×