FIMMTUDAGUR 23. MAÍ NÝJAST 21:26

Saksóknari í Berlusconi-málinu fékk byssukúlur í pósti

FRÉTTIR

Mótmæli töfðu umferð

Innlent 29. júlí 2005 00:01
Mótmæli töfðu umferð
Nokkrar tafir urðu á umferð þegar á þriðja tug atvinnubílstjóra mótmæltu olíugjaldi í gær. Bílstjórarnir óku á um þrjátíu kílómetra hraða um götur Reykjavíkur og hægðu þannig á umferð án þess þó að stöðva hana alveg.

Bílstjórarnir byrjuðu að safnast saman á Sæmundargötu við Háskóla Íslands um klukkan tvö í gær og kom lögregla strax á staðinn að sögn Árna Friðmundssonar, varðstjóra hjá Lögreglunni í Reykjavík.

Bílstjórarnir lögðu síðan stað um klukkan hálffjögur og lagði Sturla Jónsson, forsvarsmaður hópsins, áherslu á ekki yrði keyrt undir helmingi löglegs hámarkshraða auk þess sem ekki yrði farið til Mosfellsbæjar vegna framkvæmda sem gætu skapað hættu.

Bílstjórarnir skiptu sér í hópa sem keyrðu mismunandi leiðir um Reykjavík að Rauðavatni þar sem allir mættust. Þaðan ók hópur bílstjóra Suðurlandsveg að Litlu kaffistofunni en annar hópur fór aftur inn í borgina. Mótmælaaðgerðum lauk undir klukkan sex.

Lögregla var með viðbúnað um alla borg að sögn Árna og voru menn beðnir að mæta fyrr til vinnu en aðra föstudaga. "Við fylgjumst auðvitað vel með mótmælunum en sinnum einnig hinni venjulegu verslunarmannahelgarumferð," segir hann. Ekki kom til mikilla afskipta lögreglu af mótmælendunum en þó voru bílstjórar á Suðurlandsvegi beðnir um að víkja fyrir annarri umferð um stundarsakir.

Sturla Jónsson, forsvarsmaður atvinnubílstjóranna, var sáttur við mótmælin. "Við áttum góða samvinnu við lögregluna og allt gekk vel fyrir sig," segir Sturla sem vill með aðgerðunum ná eyrum ráðamanna vegna olíugjaldsins sem komið var á þann 1. júlí. Annars segir hann verða gripið til frekari mótmælaaðgerða.

Vegfarendur sem Fréttablaðið náði tali af við Rauðavatn kváðust ekki telja atvinnubílstjóra nota réttar leiðir til þess að vekja athygli á málstað sínum. Lýstu flestir óánægju með umferðartafirnar og sögðu aðgerðirnar ekki bitna á neinum nema fólkinu í landinu. Sumir þeyttu þó flautur sínar til þess að sýna bílstjórunum stuðning.
Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Innlent 23. maí 2013 19:51

Nýr stjórnarsáttmáli mjög framsóknarlegur

Nýr stjórnarsáttmáli er þjóðlegri og ber meiri keim af eldri hugmyndafræði Framsóknarflokksins en Sjálfstæðisflokksins að mati sagnfræðings. Stjórnarsáttmáli síðustu ríkisstjórnar hafi verið með ítarl... Meira
Innlent 23. maí 2013 19:22

Sigmundur Davíð: Skemmtilegast að hafa hlut kynjanna jafnan

"Auðvitað er alltaf skemmtilegast að hafa sem jafnast hlut kynjanna,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, nýr forsætisráðherra, þegar hann var spurður út í ójafnt kynjahlutfall í nýrri ríkisstj... Meira
Innlent 23. maí 2013 18:45

Gagnrýndu nýja ríkisstjórn harðlega á Bessastöðum

Það var annasamur dagur á Bessastöðum í dag þegar stjórnarskiptin gengu í gegn. Dagurinn hófst á því að ráðherrar úr ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttir mættu á ríkisráðsfund. Meira
Innlent 23. maí 2013 18:45

Dysnes við Eyjafjörð verði þjónustuhöfn Norðurslóða

Félag var stofnað í dag um átján milljarða króna uppbyggingu hafnar á Dysnesi við Eyjafjörð til að þjóna verkefnum á Norðurslóðum. Aðstandendur vonast til að framkvæmdir hefjist á næsta ári. Meira
Innlent 23. maí 2013 17:02

Sakfelldur fyrir ofbeldisfull kynferðisbrot gegn manni - hótaði að smita hann af AIDS

Hæstiréttur segir árásina hafa verið hrottalega og þyngdi héraðsdóminn yfir árásarmanninum um meira en helming. Meira
Innlent 23. maí 2013 17:00

Grét yfir tíufréttunum

Guðrún Tryggvadóttir, umhverfissinni og ritstjóri náttúra.is greindi frá því á facebook í gærkvöldi að hún hefði hágrátið yfir tíufréttunum. Umhverfismál á Íslandi næstu fjögur árin eru henni mikið áh... Meira
Innlent 23. maí 2013 16:54

(Enginn titill)

Hæstiréttur staðfesti í dag að íslenska ríkið skyldi greiða manni bætur sem sætti gæsluvarðhaldi vegna skotárásar sem varð í Smáíbúðahverfinu á aðfangadag jóla árið 2010. Meira
Innlent 23. maí 2013 16:40

Þykir vænt um kaggann

"Þetta er fínasti bíll, vinnur vel og gangurinn er góður í honum - eðalvagn satt best að segja,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fyrrverandi formaður Vinstri Grænna sem mætti á ljósbláum Volvo 14... Meira
Innlent 23. maí 2013 16:27

Nýtt ráðuneyti tekur við á ríkisráðsfundi

Nýtt ráðuneyti Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar kom til fundar með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, á Bessastöðum klukkan þrjú í dag. Það er skipað, eins og kunnugt er, þingmönnum úr Sjálfstæð... Meira
Innlent 23. maí 2013 15:43

Ingólfur Geir kominn í grunnbúðir

Ingólfur Geir Gissurarson, sem komst í gær á topp Everest, kom í dag niður í grunnbúðir. Hann er við fína heilsu. Á morgun verður haldið af stað niður úr grunnbúðum áleiðis til Lukla þaðan sem flogið ... Meira
Innlent 23. maí 2013 15:37

Sögðust vera í lundaskoðunarferð og voru sýknaðir af þjófnaði

Mennirnir eru eftirlýstir af Interpol og voru sýknaðir af ákæru um þjófnað. Dómurinn var ekki birtur á netinu, andstætt reglum Dómstólaráðs. Meira
Innlent 23. maí 2013 15:26

Jóhanna Sigurðardóttir steig dans

Jóhanna Sigurðardóttir, sem í dag lét af embætti forsætisráðherra, þakkaði samstarfsmönnum sínum fyrir sig í dansi sem tekinn var upp á myndskeið fyrir rétt um mánuði síðan. Meira
Innlent 23. maí 2013 15:00

Óraunhæft að færa Reykjavíkurflugvöll

Nýja ríkisstjórnin telur mikilvægt að framtíðarstaðsetning Reykjavíkurflugvallar verði tryggð í nálægð við stjórnsýslu og aðra þjónustu. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, telur hugmy... Meira
Innlent 23. maí 2013 14:17

Brotist inn í Þjónustusetur líknarfélaga

Brotist var inn í Þjónustusetur líknarfélaga að Hátúni 10b í nótt. Húsnæðið hýsir 9 líknarfélög. Þjófarnir létu greipar sópa, skemmdu húsgögn, og tættu verðmæt skjöl. Starfsmenn segja aðkomuna hafa v... Meira
Innlent 23. maí 2013 13:32

Tilkynnt um hátt í 400 þjófnaði

Tilkynnt var um 390 þjófnaði á höfuðborgarsvæðinu í apríl og hefur tilkynningum fjölgað jafnt og þétt frá byrjun árs. Afbrotatölfræði fyrir apríl var birt í dag. Meira
Innlent 23. maí 2013 13:18

Game of Thrones til Íslands á ný

Það lítur út fyrir að að fjórða sería Game of Thrones verði tekin upp á Íslandi. Frá þessu er greint á vefnum Svarthofdi.is, en heimildir Vísis benda einnig til þess. "Já, það er alvarlega verið að sk... Meira
Innlent 23. maí 2013 13:03

Jóhanna hissa á nýja stjórnarsáttmálanum

Fráfarandi ríkisstjórn mætti til Bessastaða á ríkisráðsfund klukkan ellefu í morgun. Þar voru staðfest lög og stjórnvaldsaðgerðir ráðuneytis Jóhönnu Sigurðarsdóttir. Meira
Innlent 23. maí 2013 12:43

Ömurlegt að heyra stjórnarandstæðinga óska fráfarandi stjórn alls ills

"Á tíma síðustu ríkisstjórnar fannst mér ömurlegt að heyra stjórnarandstæðinga óska stjórninni alls ills, og þeir hinir sömu gátu ekki einu sinni glaðst þegar góðar fréttir bárust af ríkisfjármálum, m... Meira
Innlent 23. maí 2013 12:34

15 ástæður til að elska Ísland

Ítalski ferðabloggarinn Giulia sem heldur úti vefsíðunni Travelreportage fer fögrum orðum um Ísland í nýjustu bloggfærslu sinni. Hún talar um að allir sem heimsæki Ísland heillist af landslaginu, stór... Meira
Innlent 23. maí 2013 11:44

Meirihluti íbúa í Vestmannaeyjum vill ekki hótel við Hástein

Meirihluti íbúa í Vestmannaeyjum er andvígur því að hótel rísi við Hástein. Íbúakönnun sýnir að 56% eru andvígir hótelinu en 44% eru meðmæltir því. Alls voru greidd 1041 atkvæði og var þátttakan því u... Meira
Innlent 23. maí 2013 11:08

Ríkisráð fundar í síðasta sinn

Ríkisráð kom saman á Bessastöðum klukkan ellefu í síðasta sinn. Þar mun Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, staðfesta lagafrumvörp og stjórnvaldsaðgerðir og ráðuneyti Jóhönnu Sigurðardóttur lætur... Meira
Innlent 23. maí 2013 11:02

Reynslulitlir ráðherrar

Ríkisstjórnin sem tekur formlega við völdum í dag er með töluvert minni þingreynslu en sú sem hefur setið síðustu fjögur ár. Ráðherrar nýju ríkisstjórnarinnar eru samanlagt með 45 ára þingreynslu sama... Meira
Innlent 23. maí 2013 11:01

Nýjar leiðir til að mæla virkni eldfjalla

Vísindamenn eru að þróa nýja tækni til þess að fylgjast með eldfjallavirkni á Íslandi. Ástæðurnar má rekja til eldgossins sem varð árið 2010 í Eyjafjallajökli. Eins og kunnugt er hamlaði eldgosið flug... Meira
Innlent 23. maí 2013 10:47

Veikindi hafa mikil áhrif á getu fólks til að stunda kynlíf

"Sjúklingar glíma við djúpstæð og erfið vandamál, bæði andleg og líkamleg, sem geta haft mikil áhrif á getu þeirra til að stunda kynlíf“, segir Jóna Ingibjörg Jónsdóttir kynfræðingur. Meira
Innlent 23. maí 2013 10:24

Klókir hrafnar gera sér laup á þaki álvers

Hrafnapar hefur gert sér laup á uppgöngupalli utan á kerskála Norðuráls á Grundartanga. Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Fréttir / Innlent / Mótmæli töfðu umferð
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000