Enski boltinn

Moses hafði betur gegn Gylfa og Aguero

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Victor Moses hefur verið að spila vel.
Victor Moses hefur verið að spila vel. vísir/getty
Victor Moses, leikmaður Chelsea, hefur verið kosinn leikmaður nóvember-mánaðar í ensku úrvalsdeildinni af stuðningsmönnum.

Aðrir sem komu til greina í kjörinu voru meðal annars Gylfi Þór Sigurðsson og Sergio Aguero.

Moses hlaut hátt í 19 þúsund atkvæði en Gylfi kom næstur í kjörinu með um 8 þúsund atkvæði.

Nordin Amrabat hjá Watford varð þriðji með 5.378 atkvæði. Þar á eftir komu Victor Anichebe og Sergio Aguero.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×