Handbolti

Mortensen um Katar: Þjóðerni á ekki að vera falt fyrir peninga

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Doha skrifar
Casper Mortensen eftir leikinn í kvöld.
Casper Mortensen eftir leikinn í kvöld. Vísir/Eva Björk
Casper Mortensen, hornamaður danska landsliðsins, segir að það sé skrýtin tilhugsun að Katar geti orðið heimsmeistari í handbolta á morgun.

Enn fremur segir hann það ósanngjarnt gagnvart öðrum liðum að eitt landslið hafi byggt upp sinn leikmannahóp á erlendum leikmönnum sem skipti um þjóðerni fyrir peninga.

Danir unnu fyrr í kvöld sigur á Króatíu í leik liðanna um fimmta sætið á HM. Mortensen var ánægður með sigur sinna manna þegar hann ræddi við Vísi eftir leik.

„Við vildum þetta mót á jákvæðum nótum. Við bárum virðingu fyrir Króatíu enda gott lið. Við vorum í forystu frá upphafi til enda og þó svo að við vorum aðeins kærulausir í seinni hálfleik þá kláruðum við leikinn almennilega,“ sagði Mortensen.

Sjá einnig: Danir klófestu fimmta sætið

Danir urðu að sætta sig við fimmta sætið á mótinu þrátt fyrir að hafa tapað aðeins einum leik af níu - það var gegn Spáni í 8-liða úrslitum og hann tapaðist með einu marki sem var skorað á lokasekúndum leiksins.

„Það er erfitt að segja hvort við förum með óbragð í munni frá þessu móti. Við vildum meira. Við vildum komast í undanúrslitin en það var erfitt að þurfa að spila við Spán í 8-liða úrslitunum,“ sagði hann.

Danir þakka fyrir stuðninginn í Lusail.Vísir/Eva Björk
„En það er þó gott að hafa unnið þessa síðustu tvo leiki og því förum við héðan á nokkuð jákvæðum nótum. Við vitum að við gáfum allt sem við áttum í mótið og ég held að fólkið heima sé ánægt með okkur. Við fengum frábæran stuðning, bæði hér úti og að heiman.“

Sjá einnig: Guðmundur: Vitum ekki hvað við erum að spila um

Sem fyrr segir fer úrslitaleikur mótsins fram á morgun og Mortensen játar því að það sé skrýtin tilhugsun að Katar geti orðið heimsmeistari.

„Já, án nokkurs vafa. Það hefur verið mikið talað um þetta lið en þegar reglurnar eru á þann veg að landsliðum er heimilt að kaupa leikmenn alls staðar að úr heiminum þá getur svona lagað gerst. Það er skrýtið en Katar hefur ekki brotið neinar reglur.“

Leikmenn Katars fagna einum sigra sinna á mótinu.Vísir/Eva Björk
„Ég hef sjálfur verið að einbeita mér að því að spila góðan handbolta en þetta er óneitanlega furðulegt. Ég vona svo sannarlega að Frakkland verði heimsmeistari á morgun.“

Finnst þér þetta ósanngjarnt gagnvart öðrum liðum í keppninni?

„Já,“ svarar hann umsvifalaust. „Að sjálfsögðu. Þjóðerni á ekki að vera falt fyrir peninga. Maður sækir þjóðernið sitt til fæðingarlandsins og það ætti ekki að vera hægt að spila fyrir annað land bara fyrir peninga.“

Sjá einnig: Búið að ákveða úrslitin fyrir leik

„En allir þekkja reglurnar. Maður getur skipt um landslið eftir þriggja ára biðtíma. Hvað mig varðar eru reglurnar vandamálið. Það er ekki stíga fram með ásakanir gagnvart Katar því þar var farið eftir öllum settum reglum.“

„Stóra spurningin er af hverju IHF (Alþjóðahandboltasambandið) sættir sig við þetta? Þetta er ekki sanngjarnt.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×