Körfubolti

Mookie á leið í steininn

Mookie Blaylock.
Mookie Blaylock. vísir/getty
Fyrrum NBA-leikmaðurinn Mookie Blaylock var sakfelldur fyrir manndráp á mánudag.

Mookie varð valdur að dauða Monicu Murphy með gáleysislegum akstri. Murphy var fimm barna móðir. Mookie keyrði yfir á vitlausa akrein og Murphy keyrði beint framan á hann.

Körfuboltamaðurinn fyrrverandi slasaðist talsvert. Hann var með á ferilsskráni nokkra dóma fyrir að aka undir áhrifum en hann var edrú þegar þetta slys átti sér stað.

Mookie fékk 15 ára dóm en hann gæti sloppið með að dúsa aðeins þrjú ár í steininum.

Hann var stjarna hjá Atlanta Hawks á árunum 1992 til 1999. Hann spilaði einnig með Nets og Warriors. Hann var með 13,5 stig og 6,7 stoðsendingar að meðaltali í leik á ferli sínum.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×