Enn hefur nýr landsliðsþjálfari Englands ekki verið ráðinn og því er mögulegt að Stuart Pearce muni velja landsliðshópinn sem fer á EM í sumar nú í byrjun næsta mánaðar.
Pearce þjálfar U-21 landslið Englands og mun einnig stýra knattspyrnuliði Breta á Ólympíuleikunum í Lundúnum í sumar.
Hann sagði í viðtali við breska fjölmiðla í dag að hann muni líklega velja EM-hópinn þann 10. maí eða svo ef ekki verður búið að ráða landsliðsþjálfara þá.
Þó er enn mögulegt að landsliðsþjálfari verði ekki ráðinn fyrr en í lok maímánaðar en mótið í Póllandi og Úkraínu hefst þann 8. júní.
„Ég er alveg til í að taka bæði mótin [EM og Ólympíuleikana] í sumar. Það væri frábær reynsla fyrir mig," sagði Pearce. „En hvort sem að ég muni fara á EM í sumar eða einhver annar er búið að skipuleggja liðið og allan undirbúning í þaula."
„Hver sem tekur við verður örugglega ánægður með þá vinnu sem er búið að vinna af hendi, bæði af Fabio Capello og mér sjálfum. Það er ekkert því til fyrirstöðu að nýr þjálfari takið við starfinu á morgun og taki upp þráðinn þá."
Fabio Capello hætti sem landsliðsþjálfari Englands í febrúar og Pearce stýrði landsliðinu í vináttulandsleik gegn Hollandi sem tapaðist, 3-2. Harry Redknapp, stjóri Tottenham, hefur helst verið orðaður við starfið en þó er ekki talið líklegt að hann taki við því fyrr en að tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni lýkur.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Íslendingaliðið Kristianstad tapaði 3-4 á móti Kopparbergs/Göteborg á útivelli í dag í sænsku kvennadeildinni í fótbolta. Kopparbergs/Göteborg skoraði sigurmarkið aðeins tveimur mínútum eftir að Margr...
Meira
Walter Mazzarri verður nýr þjálfari ítalska liðsins Internazionale frá Mílanó en hann skrifaði í gær undir tveggja ára samning. Mazzarri hefur gert frábæra hluti með Napoli á fjórum tímabilum sínum þa...
Meira
KF skellti KA 4-1 í Tröllaskagaslag á Ólafsfjarðarvelli í dag en liðin mættust þá í 3. umferð 1. deildar karla í fótbolta. KF, Knattspyrnufélag Fjallabyggðar, lenti undir en svaraði með fjórum mörkum.
Meira
Kristján Örn Sigurðsson, Arnór Sveinn Aðalsteinsson og félagar í Hönefoss töpuðu 0-4 á móti Ole Gunnar Solskjær og lærisveinum hans í Molde í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Meira
Íslensku landsliðskonurnar og vinkonurnar Hólmfríður Magnúsdóttir og Guðbjörg Gunnarsdóttir voru í sviðsljósinu þegar Avaldsnes vann 2-0 heimasigur á Sandviken í norsku kvennadeildinni í dag. Íslendin...
Meira
Demba Ba, framherji Chelsea, er ekki lengur nógu góður til þess að komast í landslið Senegala. Alain Giresse, þjálfari landsliðsins, valdi Ba ekki í liðið fyrir leiki í undankeppni HM í næsta mánuði.
Meira
David Beckham var ekki valinn í 19 manna leikmannahóp franska liðsins Paris St Germain sem mætir Lorient á morgun í lokaumferð frönsku deildarinnar. Það þýðir að Beckham hefur spilað sinn síðasta leik...
Meira
Bandaríski knattspyrnumaðurinn Robbie Rogers vakti heimsathygli í febrúar þegar hann kom út úr skápnum og tilkynnti að hann væri samkynhneigður. Nú ætlar hann fyrstur fótboltamanna að spila í bandarís...
Meira
Vignir Þröstur Hlöðversson, blakmaður úr Stjörnunni, valdi heldur betur daginn til þess að spila sinn hundraðasta landsleik. Vignir spilaðar hundraðasta landsleikinn á 46 ára afmælisdaginn sinn.
Meira
Það vildu örugglega margir knattspyrnumenn vera í sporum Brasilíumannsins Neymar sem fær nú tækifæri til að velja hvort hann spili með tveimur af stærstu knattspyrnufélögum heima, Barcelona eða Real M...
Meira
Gíbraltar var í dag tekið inn í Knattspyrnusamband Evrópu og verður 54. meðlimur samtakanna. Ísland gæti því hugsanlega lent í riðli með Gíbraltar í undankeppni EM 2016.
Meira
Michel Platini, forseti UEFA, telur að það sé þörf á því að stofna sérstaka íþróttalögreglu á álfunni sem fengi það verkefni að berst við veðmálabrask, spillingu, hagræðingu úrslita, ólögleg lyf og óe...
Meira
Það vakti mikla athygli um síðustu helgi þegar Roberto Mancini, fyrrum knattspyrnustjóri Manchester City, keypti heilsíðuauglýsingu í Manchester Evening News þar sem hann þakkaði stuðningsmönnum félag...
Meira
Gunnar Heiðar Þorvaldsson var enn eina ferðina á skotskónum fyrir Norrköping í dag er hann skoraði mark liðsins í 1-1 jafntefli gegn Halmstad á útivelli.
Meira
Diego Simeone, þjálfari Atletico Madrid, virðist vera búinn að sætta sig við að kólumbíski framherjinn Radamel Falcao sé á förum frá spænska félaginu. Argentínski þjálfarinn ætlar í það minnsta ekki a...
Meira
Jose Mourinho, stjóri Real Madrid, hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann fyrir rauða spjaldið sem hann fékk í bikarúrslitaleiknum á Spáni í síðustu viku.
Meira
Franska blaðið L'Equipe staðhæfir í dag að AS Monaco ætli sér að bjóða 5,5 milljarða króna, 30 milljónir punda, í belgíska varnarmanninn Vincent Kompany, fyrirliða Manchester City.
Meira