Þann 22. janúar breytti hún mataræði sínu og tók út vissar fæðutegundir.

Andlegur bati var mikill og strax á fyrsta mánuði fannst Evu hún öll léttari og hún losnaði við ýmsa verki sem höfðu hrjáð hana. Kílóin fuku af og eftir 11 mánuði og 10 daga rauf hún 50 kílóa múrinn. Að njóta betur tímans með börnunum sínum, geta valið sér föt, að þurfa ekki að fá framlengingu á belti í flugvélum og geta spjallað við gesti í veislum frekar en að hanga við hlaðborðið eru nokkrir af fjölmörgum kostum nýja lífsstílsins.
Nánar verður rætt við Evu í Íslandi í dag í opinni dagskrá kl. 18:55 á Stöð 2. Þar ljóstrar hún upp leyndarmálinu um mataræðið og sýndar verða myndir sem hún tók daglega á liðnu ári.