Handbolti

Misjafnt gengi Íslendingaliðanna í Frakklandi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ásgeir spilaði í kvöld en Róbert var á bekknum.
Ásgeir spilaði í kvöld en Róbert var á bekknum. vísir/daníel
Tvö Íslendingalið voru á ferðinni í franska handboltanum í kvöld.

Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði fjögur mörk úr níu skotum fyrir Nimes sem tapaði á útivelli, 33-27, fyrir Toulouse.

Nimes er í níunda sæti deildarinnar.

Róbert Gunnarsson kom venju samkvæmt lítið við sögu hjá PSG sem er þegar búið að tryggja sér franska meistaratitilinn.

PSG er þó ekkert á því að slaka of mikið á og vann leikinn gegn Cesson-Rennes í kvöld, 33-36.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×