Viðskipti innlent

Minni umsvif í Straumsvík hafa ekki áhrif á Búðarhálsvirkjun

Landsvirkjun segir að breytt áform álversins í Straumsvík hafi að svo stöddu ekki áhrif á uppbyggingu Búðarhálsvirkjunnar.

Í tilkynningu sem Landsvirkjun hefur sent til Kauphallarinnar segir að Rio Tinto Alcan á Íslandi hafi tilkynnt Landsvirkjun um breytt umfang straumhækkunarverkefnis álversins í Straumsvík.

„Upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir að árleg framleiðslugeta álversins myndi aukast um 20% eða úr 190 þúsund tonnum af áli í um 230 þúsund tonn. Rio Tinto Alcan hefur nú tilkynnt Landsvirkjun um breytt áform sem gera ráð fyrir aukningu í um 205 þúsund tonn. Í ljósi þessa má reikna með að raforkuþörf álversins verði minni en áformað var.

Í gildi er orkusölusamningur milli Landsvirkjunar og Rio Tinto Alcan til ársins 2036 sem gerir ráð fyrir að Landsvirkjun afhendi álverinu árlega um 3.590 GWst af raforku og 410 MW í afli. Fyrirtækin hafa átt í góðu samstarfi um áratuga skeið. Landsvirkjun væntir þess að á næstunni fari fram viðræður við Rio Tinto Alcan um breytt áform fyrirtækisins og að farsæl niðurstaða finnist fyrir báða aðila.

Að svo stöddu er ekki gert ráð fyrir að þessi breyttu áform hafi áhrif á uppbyggingu Búðarhálsvirkjunar,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×