Handbolti

Mikilvægi Arons sést vel í þessari tölfræði HBStatz

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aron Pálmarsson.
Aron Pálmarsson. Vísir/AFP
Aron Pálmarsson er besti leikmaður íslenska karlalandsliðsins í handbolta og því gríðarlega mikilvægt fyrir íslenska liðið að hann verði leikfær á HM í Frakklandi sem hefst í næstu viku.

Aron hefur verið að glíma við meiðsli frá því í leikjum Íslands í undankeppni EM í nóvember og er í kapphlaupi við tímann ætli hann sér að spila stórt hlutverk með íslenska liðinu í Frakklandi.

Tölfræðin sýnir og sannar nauðsyn þess að Aron verði með. Mikilvægi Aron Pálmarsson fyrir landsliðið sést nefnilega mjög vel í tölfræðisamantekt HBStatz sem tók saman tölfræði í keppnisleikjum íslenska liðsins á síðasta ári.

HBStatz hefur skoðar nánar tölfræði Arons í sjö keppnisleikjum Íslands frá árinu 2016 og sundurliðað hana niður eftir hálfleikjum sem og hvort íslenska liðið vinnur eða tapar.

Tölfræði Arons er mun betri í sigurleikjunum en tapleikjunum og þá er líka athyglisvert að hann er atkvæðameiri í seinni hálfleikjum leikjanna þegar liðið þarf á mönnum að halda sem taka af skarið.

Aron var með 4,6 mörk og 4,0 stoðsendingar að meðaltali í þessum sjö leikjum og hann nýtti 44 prósent skota sinna í þeim.

Íslenska liðið vann þrjá af þessum sjö leikjum og þar eru tölur Arons langt yfir meðaltalinu.

Aron er með 6,0 mörk og 4,3 stoðsendingar að meðaltali og 51 prósent skotnýtingu í sigurleikjunum en „aðeins“ 3,5 mörk og 3,8 stoðsendingar að meðaltali og 37 prósent skotnýtingu í tapleikjunum.

Framlög leikmanna í seinni hálfleik ráða oftar en ekki úrslitum og Aron er maðurinn sem gerir meira sjálfur í seinni hálfleiknum.

Aron er með fleiri stoðsendingar í fyrri hálfleik en í þeim seinni skorar hann fleiri mörk og nýtir skotin sín betur.

Aron er þannig með 2,9 mörk að meðaltali og 53 prósent skotnýtingu í seinni hálfleik og hækkar tölur sínar úr fyrri hálfleikjum leikjanna þegar hann var með 1,7 mörk og 34 prósent skotnýtingu. Aron tapar líka færri boltum í seinni hálfleikjum leikjanna og nýtir því sóknirnar mun betur.

Hér fyrir neðan má sjá þessa fróðlegu og athyglisverði samantekt HBStatz á tölfræði Arons Pálmarssonar í keppnisleikjum Íslands á árinu 2016.


Tengdar fréttir

Aron og Ásgeir Örn enn spurningamerki

Geir Sveinsson landsliðsþjálfari segir að það ríki enn óvissu um hvort Aron Pálmarsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson geti spilað með landsliðinu á HM í Frakklandi.

Áfallið gríðarlegt ef Aron verður ekki með

Strákarnir okkar hefja leik á HM í handbolta eftir níu daga og enn eru tveir lykilmenn, Aron Pálmarsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson, mjög tæpir vegna meiðsla. Undirbúningur fyrir lífið án Arons er í fullum gangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×