Viðskipti innlent

Mikil samkeppni í flugi til Íslands í sumar

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá Keflavíkurflugvelli.
Frá Keflavíkurflugvelli. vísir/vilhelm
Ódýrast verður að fljúga til Oslóar með Icelandair á næstu vikum samkvæmt verðkönnun Dohop. Verð til allra áfangastaða, þar sem samkeppni er á markaði, lækkar samkvæmt könnuninni en um rúma 20% lækkun á flugverði milli mánaða er að ræða.

Mesta lækkunin er á flugi til Oslóar, eða rúm 35%, en minnsta lækkunin er á flugi til New York, eða um 2% lækkun.

Samkvæmt tilkynningu frá Dohop útskýrir það að vissu leyti lækkun flugferða að háannatíma ferðalaga Íslendinga er að ljúka.

Mikil samkeppni hefur verið á flugi hingað til lands í sumar en alls hafa 12 flugfélög flogið á Keflavíkurflugvöll. Dohop kannaði verð til 20 áfangastaða og var samkeppni á 14 leiðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×