Viðskipti innlent

Mikil aukning á utanlandsferðum Íslendinga

Rúmlega 37.400 Íslendingar héldu utan nú í júní, sem er um 22% fleiri en héldu utan í júní í fyrra.

Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka.  Þar segir að utanlandsferðum Íslendinga hefur nú fjölgað stöðugt á milli ára í mánuði hverjum allt frá því í nóvember árið 2009, að apríl 2010 undanskildum þegar Eyjafjallajökull lét til sín taka.

Frá áramótum talið hafa um 162.600 Íslendingar haldið erlendis sem er fjölgun upp á 23% frá sama tímabili í fyrra.  Þetta er svipaður fjöldi og var á árinu 2004 en ljóst er að nokkuð er í land að fjöldinn verði jafn mikill og á árunum 2006 til og með 2008. Þegar mest lét, sem var á fyrri helmingi ársins 2008, var fjöldinn kominn upp í 227.600, sem er 40% fleiri en nú í ár.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×