Enski boltinn

Fyrsti sigur Arsenal á tímabilinu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fjölmargir leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í dag en þar ber einna helst að nefna frábæran sigur Arsenal á Watford, 3-1, á útivelli. 

Arsenal komst í 3-0 í fyrri hálfleik með mörkum frá Cazorla, Alexis Sanchez og Mesut Özil. 

Pereyra náði að minnka muninn fyrir Watford á 57. mínútu en lengra komust heimamenn ekki. Arsenal vann því fyrsta sigur sinn á tímabilinu og er liðið með fjögur stig. Watford er aðeins með eitt stig. 

Everton vann Stoke 1-0 á heimavelli. Crystal Palace og Bournemouth gerðu 1-1 jafntefli og það sama má segja um Southampton og Sunderland sem gerðu einnig 1-1 jafntefli. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×