Microsoft ræðst gegn Google

Vísir Tækni og vísindi 22. febrúar 2012 12:45
Í auglýsingunni er Google persónugert sem yfirlætislegur svikahrappur.
Í auglýsingunni er Google persónugert sem yfirlætislegur svikahrappur. mynd/Youtube/Microsoft
Tæknifyrirtækið Microsoft beinir spjótum sínum að Google í nýrri auglýsingaherferð. Leitarvélin er sökuð um óheiðarleg vinnubrögð og er Ský-þjónusta Google gagnrýnd harkalega.

Microsoft hefur verið undir þó nokkrum þrýstingi síðan Google opinberaði Google Docs notendaviðmótið. Vefforritið gerir notendum kleift að rita, breyta og vista gögn í gegnum internetið. Gögnin eru vistuð á netþjónum Google og því er hægt að nálgast skjölin hvar sem er.

„Hvað gerist þegar stærsta auglýsingafyrirtæki veraldar reynir fyrir sér í hugbúnaðarþróun?" spyr Microsoft.

Microsoft sakar Google um óvönduð vinnubrögð og segir að vefforritin séu óstöðug. Þá er Google sagt vanrækja minni fyrirtæki og einstaklinga með því að gefa út hálfkláruð forrit.

Á vefsíðu Microsoft kemur fram að Google geti ekki boðið upp á jafn góða þjónustu og notendaviðmót og Microsoft.

Hægt er að sjá auglýsinguna hér fyrir ofan.

Fleiri fréttir - Tækni og vísindi

  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Skoðun

Umsókn um málfrelsi

Umsókn um málfrelsi

Pawel Bartoszek
Fyrir seinustu alþingiskosningar bauð RÚV framboðunum að fá ókeypis kynningartíma í sjónvarpi. Sum, til d...

Skoðun

Raunhæfa planið

Raunhæfa planið

Ólafur Þ. Stephensen
Þegar gjaldeyrishöft voru sett á í kjölfar hrunsins töldu flestir þau tímabundna ráðstöfun til nokkurra v...

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Tækni og vísindi / Microsoft ræðst gegn Google