Golf

Mickelson sló tvisvar í röð úr veitingasölunni | Myndbönd

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Phil Mickelson er maður fólksins.
Phil Mickelson er maður fólksins. vísir/getty
Phil Mickelson tókst það sem á varla á að vera hægt að gera á Barclays-mótinu í golfi um síðustu helgi; slá boltann tvisvar upp í veitingasöluna við flötina á fimmtu holu vallarins.

Á öðrum keppnisdegi missti hann upphafshöggið langt til vinstri og endaði hann á teppinu í veitingasölunni. Eins og honum einum er lagið ákvað Mickelson ekki að taka víti heldur sló hann boltann af teppinu og að flötinni.

Þetta gerðist svo aftur á þriðja keppnisdegi, en um leið og hann sló boltann heyrist hann segja: „Nei, ekki aftur.“ Boltinn lenti aftur á teppinu í veitingasölunni og aftur reyndi hann að slá boltann þaðan.

Það gekk betur í seinna skiptið, en Mickelson landaði þá gullfallegu höggi inn á flötinni úr mikilli hæð, án þess að sjá flaggið eða lendingarstaðinn. Hann sló í glompu fyrri daginn og fékk skolla, en bjargaði pari í seinna skiptið.

Eðlilega var mikil kátína á meðal áhorfenda sem voru að fá sér mjöð og með því. Einn þeirra bauð Mickelson bjór fyrri daginn sem hann hafnaði pent.

Sprelligosar á Internetinu fóru af stað vegna atviksins og settu Mickelson í allskonar aðstæður með kassmerkinu #PhilWasHere. Þar var hann klipptur inn á myndir að undirbúa golfhögg á hinum ótrúlegustu stöðum.

Sumir voru fyndnari en aðrir, en nokkur dæmi um skemmtilegar aðstæður hjá Mickelson má sjá hér neðan sem og myndbönd af höggunum báða dagana og hvernig hann leysti sig úr vandræðunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×