Tónlist

Michalowich frumsýnir nýtt lag og myndband á Vísi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fínasta lag frá Magnúsi.
Fínasta lag frá Magnúsi. vísir
Michalowich frumflytur  nýtt lag á Vísi í dag en það ber nafnið I Wish og einnig má sjá myndband við það.

Lagið er eftir Magnús Jónsson og myndbandið eftir Magnús og Hrund At. Með í laginu spila gömlu félagar Magnúsar úr Silfurtónum, þeir Árni Kristjáns á gítar og Hlynur Höskuldsson á bassa.

Michalowich er tónlistarafsprengi/hljómsveit/alterego Magnúsar og er þetta annað lagið af væntanlegri plötu Michalowich sem kemur út í sumar. Fyrra lagið I Never Really Missed You kom út sumarið 2015 sem myndband í þrívídd þar sem leikjaumhverfið var undirstaðan í myndbandinu. Hægt er að horfa á það hér með þrívíddargleraugunum Oculus Red ef þess ber kostur.

Magnús hefur starfað í hljómsveitum svo sem Silfurtónum, Dá, Wonderfulz, BB&BLAKE og Gus Gus í gegnum tíðina ásamt því að vera starfandi leikari, kennari og myndlistarmaður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×