Körfubolti

Miami jafnaði metin og tryggði sér oddaleik

Anton Ingi Leifsson skrifar
Miami tryggði sér oddaleik og Dwayne var í stuði.
Miami tryggði sér oddaleik og Dwayne var í stuði. vísir/getty
Miami tryggði sér í nótt oddaleik gegn Toronto í undanúrslitum austurdeildarinnar í körfubota, en Miami vann sjötta leik liðanna í Miami í nótt, 103-91.

Miami byrjaði leikinn betur og leiddu meðal annars eftir fyrsta leikhluta 21-20. Þeir spýttu enn meira í lófana í öðrum leikhluta og unnu hann 32-24 og voru því níu stigum yfir í hálfleik, 53-44.

Heimamennirnir gáfu ekkert eftir í síðari hálfleik og unnu að lokum tólf stiga sigur, 103-91. Því þurfa liðin að leika oddaleik um hvort liðið mætir Cleveland í úrslitum austurdeildarinnar, annað kvöld.

Goran Dragic skoraði 30 stig fyrir Miami Heat og hinn skemmtilega Dwayne Wade skoraði 22 stig. Auk þess gaf Wade fimm stoðsendingar, en Kyle Lowry fór á kostum fyrir Toronto og skoraði 36 stig og gaf þrjár stoðsendingar.

Topp-5 í nótt:
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×