Innlent

Mesta úrkoman gengin yfir

Birgir Olgeirsson skrifar
Rigningin setti svip sinn á dagskrá menningarnætur nú síðdegis.
Rigningin setti svip sinn á dagskrá menningarnætur nú síðdegis. Vísir/Anton
Mesta úrkoman sem var spáð fyrir daginn í dag í Reykjavík er gengin yfir en gera má ráð fyrir örlitlum skúrum í kvöld. Búast má við töluverðum fjölda í miðbæ Reykjavíkur vegna dagskrár menningarnætur, afmælishátíðar borgarinnar, en rigning setti töluverðan svip á dagskrána nú síðdegis. Til að mynda var uppsöfnuð úrkoma klukkan átján 4,7 millimetrar en þurrt nú um kvöldmatarleytið.

Það versta er því gengið yfir en búast má við skúrum fram eftir kvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×