Messi á forsíðu Time | Ég gef allt fyrir landsliðið

Vísir Spænski boltinn 27. janúar 2012 11:30
Lionel Messi á forsíðu Time.
Lionel Messi á forsíðu Time. Mynd/Time og heimasíða Barcelona.
Lionel Messi segir að honum sárni ásakanir um að honum finnist ekki jafn mikilvægt að spila með landsliði Argentínu og félagsliði sínu, Barcelona.

Messi er 24 ára gamall en hefur búið í Barcelona síðan hann var tólf ára gamall. Mörgum heima fyrir gremst það en Messi hefur ekki alltaf náð að sýna sínar bestu hliðar í argentínska landsliðsbúningnum.

„Já, þetta er sárt og hefur angrað mig," sagði Messi um þessa umræðu í viðtali við Time-tímaritið en hann er fyrsti knattspyrnumaðurinn sem kemst á forsíðu þessa fræga rits. „Það sem er sagt er einfaldlega ekki satt - að mér finnist ekki jafn mikilvægt að spila fyrir landsliðið."

„Það hefur mér aldrei fundist. Ég held að fólk verði að skilja að þetta er liðsíþrótt og ég reyni að spila eins og ég geri í Barcelona. Ég geri alltaf mitt allra besta."

„Ég hef aldrei hætt að vera Argentínumaður. Ég er stoltur af því, jafnvel þótt ég eigi ekki lengur heima þar. Ég hef alltaf lagt ríka áherslu á þetta, frá því að ég var ungur."

„Barcelona er í dag heimili mitt vegna félagsins og fólksins sem hefur gefið mér allt. En ég mun aldrei hætta að vera Argentínumaður."

Hann er einnig spurður um Cristiano Ronaldo, leikmann Real Madrid, en sífellt er verið að bera þá saman í fjölmiðlum um allan heim. Hann segir að það ríkir ekki óvild á milli þeirra.

„Það held ég ekki. Ég hef aldrei hugsað sérstaklega mikið við hann og ég hef aldrei borið mig saman við aðra leikmenn."

„Ég reyni bara að ná betri árangri á hverju ári, bæði sem leikmaður og sem hluti af liðsheild. Það er ekkert sem breytir því. Ég held að hann [Ronaldo] sé góð persóna. Mér finnst hann góður leikmaður sem hefur fært Real Madrid mikið. Hann getur haft úrslitaáhrif á leiki."

„En nei, ég vil ekki bera mig saman við Ronaldo."

Fleiri fréttir - Spænski boltinn

Spænski boltinn 25. maí. 2012 17:00

Guardiola: Ég mun þjálfa á ný ef einhverju liði tekst að tæla mig

Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, stýrir liðinu í síðasta sinn í kvöld þegar Barcelona mæ...  

Meira
Spænski boltinn 24. maí. 2012 20:30

Litli og stóri mætast á morgun

Tvö sigursælustu liðin í spænsku bikarkeppninni í fótbolta mætast annað kvöld í úrslitalei...  

Meira
Spænski boltinn 22. maí. 2012 15:30

Ronaldo: Gef sjálfum mér tíu

Cristiano Ronaldo var ánægður með frammistöðu sína með Real Madrid á nýliðnu tímabili. Han...  

Meira
Spænski boltinn 22. maí. 2012 12:19

Mourinho samdi við Real til 2016

Jose Mourinho skrifaði í dag undir nýjan samning við Real Madrid og mun stýra liðinu til l...  

Meira
Spænski boltinn 20. maí. 2012 16:00

Modric gæti verið á leiðinni til Real Madrid

Spænsku meistararnir í Real Madrid ætla samkvæmt enskum fjölmiðlum að festa kaup á Luka Mo...  

Meira
Spænski boltinn 16. maí. 2012 22:47

Alves missir af úrslitaleiknum

Barcelona hefur staðfest að Brasilíumaðurinn Dani Alves sé viðbeinsbrotinn og verði frá næ...  

Meira
Spænski boltinn 14. maí. 2012 13:30

Van Nistelrooy leggur skóna á hilluna

Ruud van Nistelrooy hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna en hann er 35 ára gamall og á ...  

Meira
Spænski boltinn 13. maí. 2012 19:50

Real Madrid fékk 100 stig | Ronaldo skoraði gegn öllum liðum

Spánarmeistarar Real Madrid luku keppnistímabilinu með öruggum sigri á Mallorca, 4-1. Real...  

Meira
Spænski boltinn 12. maí. 2012 21:54

Barcelona kvaddi deildina með jafntefli

Það var ekki mikil reisn yfir Barcelona-liðinu í kvöld er það lék sinn lokaleik í deildinn...  

Meira
Spænski boltinn 10. maí. 2012 06:00

Messi: Það var engin pressa á mér að faðma Guardiola

Það vakti heimsathygli þegar Lionel Messi faðmaði Pep Guardiola eftir að hann skoraði fjór...  

Meira
Spænski boltinn 08. maí. 2012 20:00

Royson Drenthe sakar Messi um kynþáttaníð

Royson Drenthe, fyrrum leikmaður Real Madrid, hefur komið fram í sviðsljósið með ásakanir ...  

Meira
Spænski boltinn 08. maí. 2012 14:30

Foreldrar Guardiola: Heilsan gengur fyrir öllu

Svo virðist vera að Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, hafi ekki verið að ljúga neinu er h...  

Meira
Spænski boltinn 07. maí. 2012 17:00

Kaká ætlar að berjast fyrir sæti sínu hjá Real Madrid

Það er nánast orðinn árleg umræða um það hvort Brasilíumaðurinn Kaká fari ekki örugglega f...  

Meira
Spænski boltinn 07. maí. 2012 16:15

Mourinho um Guardiola: Það er enginn fullkominn

Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, er ekki í miklu uppáhaldi hjá José Mourinho, þjálfara R...  

Meira
Spænski boltinn 07. maí. 2012 12:30

Mourinho hafnaði enska landsliðinu árið 2007

José Mourinho, þjálfari Real Madrid, hefur staðfest að hann hafi hafnað að taka við enska ...  

Meira
Spænski boltinn 06. maí. 2012 13:30

Guardiola: Ég elska leikmennina | Myndasyrpa frá kveðjuleiknum

Pep Guardiola var kvaddur af stuðningsmönnum Barcelona í gær þegar hann stýrði sínum síðas...  

Meira
Spænski boltinn 05. maí. 2012 21:29

Real Madrid nálgast 100 stig

Sjálfsmark tryggði Real Madrid dramatískan sigur á Granada í næstsíðustu umferð spænsku úr...  

Meira
Spænski boltinn 05. maí. 2012 21:20

Metin falla enn hjá Messi | Skoraði fjögur

Lionel Messi skoraði öll fjögur mörk sinna manna í Barcelona í 4-0 sigri á grönnunum í Esp...  

Meira
Spænski boltinn 04. maí. 2012 18:30

Forseti Santos: Mourinho myndi eyðileggja Neymar

Luis Alvaro de Oliveira Ribeiro, forseti Santos, er sannfærður um það að væri ekki rétta s...  

Meira
Spænski boltinn 02. maí. 2012 21:54

Real Madrid tryggði sér titilinn á Spáni

Real Madrid tryggði sér í kvöld spænska meistaratitilinn í knattspyrnu er liðið vann örugg...  

Meira
Spænski boltinn 02. maí. 2012 19:51

Messi búinn að slá markametið

Barcelona minnkaði forskot Real Madrid á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar niður í fjögur s...  

Meira
Spænski boltinn 02. maí. 2012 14:15

Tim Wiese orðaður við Real Madrid

Þýski markvörðurinn Tim Wiese hefur staðfest að Real Madrid hafi sett sig í samband við um...  

Meira
Spænski boltinn 01. maí. 2012 13:00

Mourinho vill fá Zlatan Ibrahimovic til Real Madrid

José Mourinho, þjálfari spænska stórliðsins Real Madrid, er strax farinn að huga að næsta ...  

Meira
Spænski boltinn 29. apr. 2012 21:40

Barcelona vann og Messi jafnaði Ronaldo

Barcelona tók Rayo Vallecano í kennslustund í kvöld en lærisveinar Pep Guardiola unnu 7-0 ...  

Meira
Spænski boltinn 29. apr. 2012 11:42

Öruggt hjá Real Madrid | Benzema sá þriðji í 20 mörkin

Real Madrid steig stórt skref í átt að spænska meistaratitlinum í knattspyrnu með 3-0 sigr...  

Meira
Spænski boltinn 28. apr. 2012 06:00

Tito stígur úr skugga Guardiola

Pep Guardiola hefur ákveðið að hætta hjá Barcelona eftir fjögur afar farsæl ár sem knattsp...  

Meira
Spænski boltinn 27. apr. 2012 14:15

Guardiola þreyttur og ætlar að taka eins árs frí

"Fjögur ár er heil eilífð sem þjálfari Barcelona," sagði Pep Guardiola sem tilkynnti í mor...  

Meira
Spænski boltinn 26. apr. 2012 22:20

Tekur Villas-Boas við Barcelona?

Flestir fjölmiðlar á Spáni og víðar um Evrópu virðast nú á einu máli um að Pep Guardiola m...  

Meira
Spænski boltinn 26. apr. 2012 22:45

Anzhi ætlar að reyna að kaupa Alves

Rússneska félagið Anzhi Makhachkala er ekki hætt að eyða stjarnfræðilegum peningum í leikm...  

Meira
Spænski boltinn 26. apr. 2012 17:42

BBC og Sky: Guardiola hættir hjá Barcelona

Pep Guardiola mun á morgun tilkynna opinberlega ákvörðun sína um að stíga frá borði sem kn...  

Meira
Spænski boltinn 26. apr. 2012 15:00

Guardiola ákveður framtíð sína á morgun

Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, mun væntanlega gefa það út á morgun hvort hann haldi áf...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Sport / Fótbolti / Spænski boltinn / Messi á forsíðu Time | Ég gef allt fyrir landsliðið