Enski boltinn

Messan: Þetta sögðu Bjarni og Brynjar Björn um leik Liverpool og City

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðmundur Benediktsson fór yfir leik Liverpool og Manchester City í Messunni í gær ásamt gestum sínum þeim Bjarna Guðjónssyni og Brynjari Birni Gunnarssyni. Stórleikur helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni bauð upp á algjör veislu.

Liverpool vann 3-2 sigur í leiknum og steig stórt skref í átt að sínum fyrsta Englandsmeistaratitli í 24 ár. Allir eru þeir sammála um að þetta hafi verið frábær auglýsing fyrir enska boltann.

„Þetta var alveg ótrúlegur leikur," byrjar Bjarni Guðjónsson en það má sjá alla umræðu strákanna með því að smella hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×