Enski boltinn

Messan: Fer Agüero í þriggja leikja bann?

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Svo gæti farið að Sergio Agüero verði settur í þriggja leikja bann fyrir að gefa Winston Reid olnbogaskot í leik Manchester City og West Ham um helgina.

Málið var tekið fyrir í Messunni í gærkvöldi og þar voru þeir Hjörvar Hafliðason og Bjarni Guðjónsson ekki sammála um hvort að um viljaverk hafi verið að ræða.

„Þetta er rautt. Hann hlýtur að fá þriggja leikja bann,“ sagði Hjörvar.

„Það verður allt vitlaust ef hann fær ekki bann. Ef að Diego Costa eða Fellaini hefðu gert þetta hefðu þeir fengið lögreglufylgd af vellinum.“

Bjarni telur ólíklegt að það verði niðurstaðan. „Það kæmi mér mjög á óvart ef hann færi í bann,“ sagði Bjarni en þess má geta að United og City eigast við í næsu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×