Körfubolti

Meistararnir sömdu við alvöru skyttu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Korver í leik með Atlanta.
Korver í leik með Atlanta. vísir/getty
Meistarar Cleveland Cavaliers eru búnir að semja við skyttuna Kyle Korver sem er mikill styrkur fyrir liðið.

Korver er mikil þriggja stiga skytta og er að setja niður 42,9 prósent þriggja stiga skota sinna á ferlinum.

Með LeBron James sem liðsfélaga mun Korver fá mikið af opnum skotum og skotnýting hans er enn betri þegar hann fær opin skot. Vond tíðindi fyrir andstæðinga Cleveland.

Korver er orðinn 35 ára gaman en hann kemur til Cleveland frá Atlanta.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×